Ríki og svæði

Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur, Svíþjóð og sjálfstjórnarsvæðin Færeyjar, Grænland og Álandseyjar starfa saman í norrænu samstarfi í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni.

Bæði Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin eiga fjölda samstarfsaðila og taka virkan þátt í öðru svæðasamstarfi.

Norðurlandaráð er aðili að þingmannasamstarfi Eystrasaltssvæðisins BSPC bæði með því að senda sendinefnd á árlegan fund og með því aðildarríkin eiga fulltrúa í fastanefnd samtakanna. Norðurlandráð er áheyrnarfulltrúi í fastanefnd þingmannanefndar norðurskautsins (SCPAR), sem er þingmannanefnd Norðurskautsráðsins.

Norræna ráðherranefndin er áheyrnarfulltrúi í Norðurskautsráðinu sem er samstarfsvettvangur ríkisstjórna þeirra ríkja sem eiga land á norðurskautinu; auk norrænu ríkjanna, Grænlands og Færeyja er um að ræða Kanada, Rússland og Bandaríkin. Ráðherranefndin er einnig virkur þátttakandi í Baltic Sea Initiative, sem vinnur að því að efla samkeppnishæfni svæðsins og framkvæmd norðlægu víddar ESB á ýsmum sviðum. Að auki tekur ráðherranefndin þátt í samstarfi sem Barentsráðið og Barentssvæðaráðið eiga frumkvæði að.

Norræna ráðherranefndin er með skrifstofur í Eistlandi, Lettlandi, Litháen, í Norðvestur-Rússlandi og Kalíningrad.

Mikill fjöldi stofnana í norrænni eigu er innan ramma norræna samstarfsins. Eistland, Lettland og Litháen hafa síðan árið 2005 einnig verið meðeigendur að einni stofnananna - Norræna fjárfestingabankanum (NIB).

Tengiliður
Helgi Þorsteinsson
Sími +45 33 96 04 59
Tölvupóstur ht@norden.org