Yfirlit yfir samninga á norden.org
Upplýsingar um samningana eru ætlaðar almenningi, stjórnmálamönnum, þeim sem ákvarðanir taka, embættismönnum, fjölmiðlum og öðrum sem áhuga hafa á norrænum samningum og samkomulagi. Samningarnir eru einvörðungu birtir í upplýsingaskyni. Ekki er um fullkominn lista samninga að ræða, heldur eru þar birtir helstu samningar sem skipta máli í norrænu samstarfi.
Á þessum vefsíðum eru birtir textar samninga sem undirritaðir hafa verið af Norrænu ráðherranefndinni og samþykktir í löndunum.
Um getur verið að ræða ákvarðanir sem teknar hafa verið af norrænu forsætisráðherrunum, samstarfsráðherrunum eða til að mynda landbúnaðarráðherrum á ráðherrafundi.
Á vefsíðum með samningum á norden.org eru einnig upplýsingar um ákvarðanir og yfirlýsingar, sem varða leiðina fyrir norrænt samstarf til framtíðar. Yfirleitt er um að ræða fjölþjóðlega samninga.
Á þessum vefsíðum eru einnig samkomulagstextar eða krækjur í samninga á öðrum vefsíðum, sem veita mikilvægar upplýsingar og gera almenningi kleift að skilja umgerðina um norræna samstarfið. Meðal annars má finna þar ESB sáttmálann, EES samninginn, Schengen samkomulagið og krækjur í Vínarsamninginn (sem fjallar um samkomulagsréttinn, hvernig undirritaðir samningar milli ríkja eiga að vera og hvernig þeim skuli stýra).
Enn fremur eru þar krækjur í umsjónaraðila með samkomulagsréttinum á Norðurlöndunum, þannig að þeir sem áhuga hafa á geti kynnt sér þjóðarrétt í hverju landi fyrir sig og hvaða þýðingu hann hefur í norrænu samstarfi.
Samningar á norden.org eru birtir í upplýsingaskyni
Samningar sem birtir eru á vefsíðunni norden.org eru eingöngu birtir þar í upplýsingaskyni.
Upplýsingar um samningana eru ætlaðar almenningi, stjórnmálamönnum, þeim sem ákvarðanir taka, embættismönnum, fjölmiðlum og öðrum sem áhuga hafa á norrænum samningum og samkomulagi.
Oftast er um að ræða samkomulag svonefnda alþjóðasamninga, samninga og ákvarðanir, en einnig eru þar yfirlýsingar og skjöl sem eru undirstaða framtíðarsamstarfsins og sem vísa veginn fram á við í norræna samstarfinu.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðum utanríkisráðuneyta Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar.
Del.icio.us
Facebook
Google Bookmarks
Twitter
Digg
