Þannig virkar val á tungumáli og tungumálaútgáfur á norden.org
Norden.org er á sex tungumálum, en ekki er allt efni þýtt á öll tungumál. Mestur hluti efnisins er aðgengilegur á að minnsta kosti einu skandínavísku tungumáli (dönsku, norsku eða sænsku) og mikið er þýtt á finnsku, íslensku og ensku. Einnig kemur fyrir að efni er einungis til á finnsku, íslensku eða ensku.
Notendur norden.org geta valið það tungumál sem þeir kjósa með aðstoð tungumálayfirlitsins efst til vinstri á síðunni. Efni sem ekki er þýtt á það tungumál sem valið er, er ekki falið, en kemur fram á öðru tungumáli. Tungumál sem birtist veltur á því hvaða tungumáli er valið og hvaða tungumáli/tungumálum efnið er til á.
| Valið tungumál | 1. valkostur | 2. valkostur | 3. valkostur | 4. valkostur |
|---|---|---|---|---|
| Sænska | Norska | Danska | Enska | |
| Danska | Norska | Sænska | Enska | |
| Norska | Danska | Sænska | Enska | |
| Finnska | Sænska | Norska | Danska | Enska |
| Íslenska | Danska | Norska | Sænska | Enska |
| Enska | Sænska | Danska | Norska |