Verkamannaflokkur jafnaðarmanna í Svíþjóð hefur skráð „Norræna líkanið" sem vörumerki í Svíþjóð. Þetta hefur sett af stað umræðu á Norðurlöndum, þar sem rætt er: Hver á einkarétt á „norræna líkaninu"?
Hjá Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði ríkir enginn vafi: „Norræna líkanið" er sameiginlegur norrænn menningararfur, sem ekki er hægt að tengja einstökum pólitískum flokkahópi.
Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð hafa því andmælt skráningu Norden sem vörumerki meðsameiginlegum tilmælum til einkaleyfastofunnar í Svíþjóð, Patent- og Registreringsverket.
Málið hefur vakið nokkra athygli bæði í norrænum og alþjóðlegum fjölmiðlum og umræðan heldur áfram, frá dagblaðinu Dagens Nyheter til Washington Post.