Document Actions

Leiðir til að virkja börn til þátttöku – nokkur dæmi

Norrænt rit í tilefni 20 ára afmælis Barnasáttmála SÞ
Kaupa rit
Viðmiðunarverð: 210.00 DKK

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 20 ára á þessu ári. Í tilefni þessara tímamóta birtast hér 23 greinar um leiðir til að virkja börn til þátttöku í norrænu ríkjunum fimm og á sjálfstjórnarsvæðunum Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi.

Greinarnar ná yfir vítt svið og lýsa líkönum fyrir þátttöku barna og unglinga í mikilvægum þáttum daglegs lífs: í leik- og grunnskóla, í menningarstarfi og nærumhverfinu sem og aðkomu þeirra að pólitískum ákvörðunum. Þá er sagt frá félagslegri virkni barna og unglinga sem búa að reynslu sem skjólstæðingar félagsþjónustunnar.
 
Mikilvægt markmið er að þessi dæmi nýtist sem hvatning og verkfæri í starfi með æskufólki.

Norska félagsvísindastofnunin (NOVA) setti skýrsluna saman að beiðni barna- og ungmennanefndar Norrænu ráðherranefndarinnar (NORDBUK).

Hala niður ritinu (frítt)

690Kb
Útgáfudagur
Jun 25, 2010
ISBN
978-92-893-2068-9
Tungumál
íslenska
Blaðsíðufjöldi
101
Útgáfunúmer
TemaNord 2010:547

 

Leita í ritum