Að tryggja efnahag einstaklinga á elliárum og þegar veikindi ber að garði, í gegnum lífeyriskerfið, hefur verið undirstaða norræna velferðarríkisins. Þróunin hefur alls staðar verið í þá átt, að stöðugt stærri hluti þessara trygginga tengist þátttöku á vinnumarkaði. Þessar lífeyrisgreiðslur er ekki samræmdar í gegnum samninga að sama marki og opinberar lífeyrisgreiðslur. Sú hætta er því fyrir hendi að Norðurlandabúar, sem flytjast milli landa missi réttindi sín eða séu ekki meðvitaðir um réttindi sín annars staðar á Norðurlöndum. Norrænn samstarfsvettvanguri um kerfishindranir óskaði eftir gerð skýrslunnar, en í henni er yfirlit yfir tengingar vinnumarkaðar og lífeyrisgreiðslna, auk dæma um þau vandamál sem upp geta komið þegar einstaklingar flytjast á milli landa. Í skýrslunni eru einnig leiðbeiningar um hvernig leysa megi vandamál, sé til þess pólitískur vilji.
Fáðu tölvupóst þegar að eitthvað nýtt kemur út um efni sem þú hefur áhuga á