Forsætisnefnd Norðurlandaráðs vill að reglunni um samhljóða samþykki í norrænu samstarfi verði breytt þannig að hópur landa geti aukið samstarf sín í milli á ákveðnum sviðum þó að einhver að aðildarríkjum samstarfsins hafni þátttöku. Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs, segir að margar góðar hugmyndir um aukið samstarf deyi í fæðingu vegna þess að vitað sé að einhver ákveðin lönd hafi ekki áhuga á því tiltekna máli.
Helgi segir að í Helsinki-sáttmálanum, sem liggur til grundvallar norrænu samstarfi, sé kveðið á um að öll löndin þurfi að vera sammála til þess að tillögur nái fram að ganga.
Norræna samstarfið er ekki yfirþjóðlegt vald og það eru því engar forsendur fyrir meirihlutaákvörðunum. Meirihluti landanna getur ekki ákveðið að hin eigi að gera eitthvað sem þau hafa ekki áhuga á. Það hefur sína kosti en við viljum gera samstarfið kraftmeira og sveigjanlegra með því að leyfa svokallað “opt-out”, það er að segja að ef einhverjar þjóðir vilja ekki vera með í einhverju tilteknu máli geti hinar samt haldið áfram. Ég held að þær þjóðir sem hafna því að vera með séu ekki verr settar þó að hinar haldi áfram.
Helgi bendir á að stundum liggi einfaldar landfræðilegar ástæður að baki því að ákveðin lönd hafi ekki áhuga á tilteknu samstarfi. Hann telur jafnframt að reglan um að allir þurfi að vera sammála hafi ásamt öðru staðið í vegi fyrir auknu samstarfi í varnar- og öryggismálum.
Helgi segir að tillaga forsætisnefndarinnar hafi verið kynnt á fundi með forsætisráðherrunum í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Reykjavík, en að hún hafi ekki fengið undirtektir þar að þessu sinni. Forsætisnefndin ætlar einnig að taka málið upp á fundi með samstarfsráðherrum Norðurlanda.
Helgi segir of snemmt að segja hvort raunhæft sé að breytingin verði samþykkt síðar.
Reglan um samhljóða samþykki er grundvallaratriði í norrænu samstarfi og það þarf því mikla umræðu og umfjöllun til þess að fá henni breytt. Ég held samt að eftir því sem málið fær meiri umræðu verði mönnum ljósara að við breytinguna tapast ekkert, það getur aðeins orðið ávinningur.
Bildedatabase med høyoppløste bilder av blant annet nordisk miljø, politikere og arrangementer.