Finnar og Svíar vilja taka að sér loftrýmiseftirlit yfir Íslandi, en fyrst þarf að fá samþykki NATO og sænska þingsins. Það er einnig hugsanlegt að herþotur landanna verði óvopnaðar við eftirlitið. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsætisráðherra Norðurlanda sem haldinn var í tengslum við Norðurlandaráðsþing í dag.
Vegna hlutleysisstefnu Svía og Finna og vegna þess að löndin standa utan NATO þarf semja sérstaklega um einstök atriði í þátttöku þeirra.
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði að greina þyrfti milli loftrýmiseftirlits ("air policing") og loftrýmisgæslu ("air surveillance"). Svíar skilgreina hlutverk sitt sem loftrýmiseftirlit, og er af þeim sökum óljóst hvort herþotur þeirra verði vopnaðar eða ekki.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti mikilli ánægju með ákvörðun Finna og Svía og sagðist ekki búast við að NATO myndi á nokkurn hátt standa í vegi fyrir þátttöku þeirra í eftirlitinu.
Á fundinum kom fram almenn ánægja með vaxandi samstarf Norðurlanda á sviði varnar- og öryggismála. Mörg af þeim markmiðum sem lýst var í skýrslu Thorvald Stoltenbergs, fyrrvarandi utanríkis- og varnarmálaráðherra Noregs, frá árinu 2009 hafa náðst.
Nánar verður rætt um málið á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda á morgun.