Norden 0–30: Styrkir til verkefna og samstarfs félagasamtaka

25.07.18 | Fjármögnunarmöguleiki
Áætlunin Norden 0–30 styrkir verkefni og samtök barna og ungmenna og markmiðið er að styrkja þeirra eigin samtök, áhrif þeirra og þátttöku í pólitísku, menningarlegu og félagslegu starfi. Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) kom áætluninni á fót og Norræna menningargáttin hefur umsjón með henni.

Upplýsingar

Flokker
Styrkir
External organization
Norræna menningargáttin
Countries
Álandseyjar
Danmörk
Færeyjar
Finnland
Grænland
Ísland
Noregur
Svíþjóð

Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) styrkir verkefni og samtök barna og ungmenna og hefur í því skyni komið á fót styrkjaáætlun sem Norræna menningargáttin hefur umsjón með.

Markmið styrkjaáætlunarinnar 0–30 er að efla samtök barna og ungmennanna sjálfra, áhrif þeirra og þátttöku í menningarlegu, pólitísku eða félagslegu starfi. Verkefnið skal vera samstarf milli þriggja (3) norrænna þjóða hið minnsta. Auk þess getur samstarf við Eystrasaltsríki eða Norðvestur-Rússlands verið liður í umsókninni.

Á árunum 2018 til 2020 verður sérstök aukafjárveiting eyrnamerkt verkefnum með áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Þetta er niðurstaða samstarfs milli norrænu barna- og ungmennanefndarinnar og áætlunarinnar 2030 kynslóðin.

Umsóknir eru teknar til meðferðar hjá Norrænu menningargáttinni þrisvar á ári í tengslum við auglýstan umsóknarfrest. Sótt er um gegnum rafræna umsóknargátt sem er aðgengileg á vefsvæði Norrænu menningargáttarinnar. Á vefsvæðinu er einnig að finna upplýsingar um matsviðmið áætlunarinnar og hverjir geta fengið styrk ásamt leiðbeiningum varðandi umsóknir.