Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar um vinnurétt (NAU)
Upplýsingar
Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar um vinnurétt
Fjárveitingum frá vinnuréttarnefndinni skal fyrst og fremst varið í greiningarvinnu og námsstefnur um pólitísk mál á sviði vinnuréttar sem eru ofarlega á baugi og hafa norræna skírskotun. Mikilvægasta skilyrðið fyrir styrkhæfi verkefnis er að það komi norrænu ríkjunum, Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi að gagni og hafi þar með norrænt notagildi.
Almennar leiðbeiningar og upplýsingar um styrki
Nefndin biður umsækjendur að kynna sér eftirfarandi upplýsingar áður en þeir senda umsóknir til ritara vinnuréttarnefndarinnar. Í framhaldinu er hægt að fá nánari upplýsingar hjá nefndarritaranum. Hér á síðunni eru tenglar á umsóknareyðublað og leiðbeiningar um styrki sem nefndir Norrænu embættismannanefndarinnar um vinnumál (EK-A) veita.
Umsóknareyðublöð vinnuréttarnefndarinnar (NAU)
Umsóknareyðublöð nefndar um samskipti aðila vinnumarkaðarins (The Industrial Relations Committee (NAU)) fyrir verkefnastyrki
Auglýstir styrkir
Vinnuréttarnefndin auglýsir enga styrki til umsóknar eins og er.