Andlát fjölskyldumeðlims á Álandseyjum

Þú getur lesið þér til um tilkynningar um andlát til annars norræns lands, erfðafjárskýrslur, arf og erfðaskatt á síðunni um andlát fjölskyldumeðlims í Finnlandi þar sem sömu reglur gilda á Álandseyjum og í Finnlandi.
Tilkynning um andlát á Álandseyjum
Á Álandseyjum er það svæðisskrifstofa Álandseyja sem hefur umsjón með skráningu andláta einstaklinga með finnska kennitölu. Ef einstaklingur með fasta búsetu á Álandseyjum sem er ríkisborgari í öðru norrænu landi deyr á Álandseyjum er tilkynning um andlát almennt ekki send beint til yfirvalda í hinu landinu. Hafðu samband við svæðisskrifstofuna vegna þessara mála.Á síðu svæðisskrifstofunnar eru gefnar upplýsingar tilkynningar um andlát, hver gefur út dánartilkynningu, gefur jarðarfararleyfi og hvert aðstandendur þurfa að senda tilkynningu.
Jarðarfarir
Eina útfararstofan á Álandseyjum er Nocturne í Maríuhöfn, en hún getur aðstoðað þig við flest allt í tengslum við andlát. Stofan getur til dæmis skipulagt flutning fyrir sænska ríkisborgara sem deyja á Álandseyjum en verða jarðsettir í Svíþjóð. Ef þú hefur spurningar skaltu hafa samband við Nocturne.
Dánarbætur til aðstandenda
Í vissum tilfellum áttu rétt á bótum þegar fjölskyldumeðlimur deyr. Upplýsingar um dánarbætur aðstandenda á síðunni „Dánarbætur á Álandseyjum“.
Nánari upplýsingar:
Ef þú ert með spurningu skaltu fylla út eyðublaðið hérna:
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.