Dagvistun ungra barna í Finnlandi

Þegar foreldrar hafa fullnýtt orlofsrétt sinn geta þeir valið milli dagvistunar á vegum hins opinbera eða á vegum einkaaðila fyrir barn sitt, eða sótt um styrk til að sinna barninu heima.
Í Finnlandi nefnist dagvistun ungra barna því formlega heiti „varhaiskasvatus“ á finnsku og „småbarnspedagogik“ á sænsku, sem gæti á íslensku útlagst sem „uppeldis- og menntastefna í árbernsku“. Dagvistunarmál heyra undir finnska menntakerfið. Öll börn undir skólaaldri eiga rétt á dagvistunarplássi, líka þó að annað foreldra eða bæði séu utan vinnumarkaðar.
Dagvistun á vegum sveitarfélaga
Finnsk sveitarfélög bjóða dagvistun á leikskólum eða hjá dagforeldrum fyrir 0–6 ára gömul börn. Sækja þarf um dagvistunarpláss hjá sveitarfélagi fjórum mánuðum áður en dagvistun á að hefjast. Hægt er að fá pláss á tveimur vikum ef foreldrar fá vinnu eða komast inn í nám í Finnlandi. Nánari upplýsingar um dagvistun eru á þjónustuvefnum Suomi.fi.
Gjald fyrir dagvistun á vegum sveitarfélaga ræðst af tekjum fjölskyldunnar, fjölskyldustærð og því hvað barnið sækir dagvistun í margar klukkustundir á viku. Nánari upplýsingar um gjaldtöku vegna dagvistunar eru á vefsvæði finnska mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Dagvistun á vegum einkaaðila
Dagvistun á vegum einkaaðila fyrir 0–6 ára gömul börn er í boði hjá einkareknum leikskólum og dagforeldrum. Sótt er um pláss hjá viðkomandi leikskóla eða dagforeldri. Auk dagforeldra sem annast börn á heimili sínu getur þú ráðið manneskju til starfa inn á þitt heimili.
Verð fyrir dagvistun á vegum einkaaðila eru breytileg. Þú getur fengið styrk vegna dagvistunar á vegum einkaaðila frá finnsku almannatryggingastofnuninni (Kela) og þá munar ekki endilega miklu í verði miðað við dagvistun á vegum sveitarfélags. Ráðir þú manneskju inn á heimili þitt til að annast barn eða börn verður þú vinnuveitandi hennar og hefur skyldum að gegna í samræmi við það.
Nánari upplýsingar um dagvistun á vegum einkaaðila færðu hjá því finnska sveitarfélagi sem þú býrð í eða ert að flytja til. Nánari upplýsingar um styrk vegna dagvistunar á vegum einkaaðila eru á vefsvæði finnsku almannatryggingastofnunarinnar (Kela).
Styrkur til að sinna barni heima
Þú átt rétt á styrk til að sinna barni heima fyrir ef barn þitt undir þriggja ára aldri hefur ekki dagvistunarpláss hjá sveitarfélaginu. Foreldri þarf ekki sjálft að vera heima með barn sitt, leyfilegt er að ráða einhvern annan til þess. Nánari upplýsingar um styrk til að sinna barni heima eru á vefsvæði Kela.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu skaltu fylla út eyðublaðið hérna:
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.