Barnabætur í Finnlandi

Suomen lapsilisä
Tilgangur barnabóta er að standa straum af hluta þess kostnaðar sem fylgir barnauppeldi. Á þessari síðu er sagt frá barnabótum í Finnlandi og skilyrðum fyrir því að fá greiddar barnabætur frá Finnlandi ef þú flytur til annars norræns lands eða stundar þar vinnu.

Finnska almannatryggingastofnunin (Kansaneläkelaitos eða Kela) greiðir barnabætur vegna barna sem búsett eru í Finnlandi. Finnskar barnabætur eru greiddar frá og með fyrstu mánaðamótum eftir fæðingu barns eða frá og með þeim mánuði þegar barn hlýtur rétt til barnabóta, til dæmis í tengslum við flutning til Finnlands. Barnabætur eru greiddar í síðasta sinn fyrir þann mánuð sem barnið nær 17 ára aldri.

Upphæð barnabóta er þrepaskipt eftir fjölda barna. Barnabætur eru skattfrjálsar tekjur. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Athygli er vakin á því að barnabætur á Álandseyjum eru hærri en á finnska meginlandinu. Þær eru greiddar af álensku landsstjórninni. Nánari upplýsingar eru á síðunni Barnabætur á Álandseyjum.

Barnabætur ef flutt er til Finnlands eða starfað í öðru landi meðan búið er í Finnlandi

Réttur til finnskra barnabóta grundvallast á búsetu í Finnlandi. Greiðslur hætta því að berast ef barnið og forsjáraðili þess flytja til annars lands. Í sumum tilvikum getur fólk sem kemur til vinnu í Finnlandi frá öðru norrænu landi fengið barnabætur greiddar jafnvel þó að barnið búi ekki í Finnlandi. Eigir þú rétt á barnabótum í tveimur mismunandi löndum eru fjölskyldubætur ákvarðaðar í samræmi við löggjöf ESB. Nánari upplýsingar eru á vefsvæði Kela.

Þú getur einnig fengið barnabætur greiddar vegna barns sem dvelur tímabundið í öðru landi, hafi barnið fasta búsetu í Finnlandi. Þá má tímabundin dvöl erlendis ekki vara lengur en í 6 mánuði. Hægt er að fá barnabætur vegna barns sem dvelur erlendis lengur en í 6 mánuði ef barnið er til dæmis fjölskyldumeðlimur námsmanns, útsends starfsmanns eða einstaklings sem starfar erlendis í umboði finnska ríkisins. Nánari upplýsingar um greiðslu finnskra barnabóta til annarra landa eru á vefsvæði Kela.

Eigir þú ekki rétt á barnabótum frá Kela kannt þú að eiga rétt á barnabótum frá því landi sem barnið býr í. Nánari upplýsingar eru á síðu um barnabætur í viðkomandi landi.

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna