Leiðbeiningar: flutt til Finnlands

Á þessari leiðbeiningasíðu eru ýmsar upplýsingar sem gott er að hafa til hliðsjónar ef þú hyggur á flutninga til Finnlands. Ef þú flytur til Finnlands þarft þú að tilkynna flutninginn til ýmissa stofnana. Auk þess geta flutningar til Finnlands haft áhrif á rétt þinn til almannatrygginga og heilbrigðiþjónustu, svo og á skattlagningu þína. Hér eru einnig upplýsingar um dvalar- og starfsleyfi í Finnlandi, búsetu, tungumálanámskeið og flutning búslóðar, bifreiða og gæludýra inn í Finnland.
Ef þú ert að flytja til Finnlands vegna vinnu eða náms skaltu líka kynna þér þessar leiðbeiningasíður.
Dvalar- og starfsleyfi í Finnlandi
Borgarar norrænna ríkja þurfa ekki dvalar- eða starfsleyfi til að dvelja eða starfa í öðru norrænu ríki. Þó gilda ákveðin skilyrði fyrir borgara ESB eða EES-landa utan Norðurlanda og borgara annarra ríkja sem vilja dvelja eða starfa í Finnlandi. Nánari upplýsingar eru á síðunni Dvalar- og starfsleyfi í Finnlandi.
Að tilkynna flutning og skrá sig í þjóðskrá í Finnlandi
Nánari upplýsingar á síðunni Að tilkynna flutninga og skrá sig í þjóðskrá í Finnlandi.
Einstaklingar sem flytja varanlega til Finnlands fá finnska kennitölu þegar þeir skrá sig inn í landið. Í vissum tilvikum getur fólk fengið finnska kennitölu þótt það dvelji aðeins tímabundið í landinu. Nánari upplýsingar eru á síðunni Finnsk kennitala.
Almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta
Sé flutt milli landa á ávallt að tilkynna það yfirvöldum almannatrygginga í brottfararlandinu. Sé um að ræða varanlegan flutning er einnig gott að tilkynna hann til finnsku almannatryggingastofnunarinnar (Kansaneläkelaitos eða Kela. )
Upplýsingar um það hvar þú átt aðild að almannatryggingum eftir flutninga milli landa eru á síðunni Almannatryggingakerfi hvaða lands tilheyrir þú?
Upplýsingar um rétt til almannatrygginga á grundvelli búsetu og atvinnu eru á síðunni Almannatryggingar í Finnlandi. Upplýsingar um heilbrigðisþjónustu eru á síðunni Réttur til heilbrigðisþjónustu í Finnlandi. Upplýsingar um atvinnuleysistryggingar eru á síðunni Atvinnuleysisbætur í Finnlandi.
Skattlagning
Upplýsingar um skattlagningu í Finnlandi eru á síðunni Skattar í Finnlandi. Á norrænu skattagáttinni, Nordisk eTax, eru lík gagnlegar upplýsingar um skattlagningu í norrænu löndunum.
Húsnæðismál
Upplýsingar um búsetuform, húsnæðisleit og húsnæðisstyrk eru á síðunni Búseta í Finnlandi.
Annað sem hafa þarf í huga
Hér fyrir neðan finnur þú leiðbeiningar um það að flytja búslóð, gæludýr og bifreið til Finnlands, auk upplýsinga um tungumálanámskeið, bankamál og ýmsa þjónustusamninga.
Búslóðaflutningar og gæludýr
Svör við spurningum varðandi búslóðaflutninga er að finna á síðunni Tollareglur í Finnlandi. Upplýsingar um að ferðast og flytja með gæludýr eru á síðunni Að ferðast með hund eða kött til Finnlands.
Ökutæki og ökuskírteini
Fjallað er um innflutning og skráningu ökutækja á síðunni Ökutæki í Finnlandi.
Ökuskírteini sem gefið er út í öðru norrænu landi er einnig gilt í Finnlandi. Nánari upplýsingar eru á síðunni Ökuréttindi í Finnlandi.
Tungumálanámskeið í Finnlandi
Byrjenda- og framhaldsnámskeið í finnsku eru í boði um allt landið, til dæmis í símenntastofnunum og lýðskólum sem eru í langflestum sveitarfélögum Finnlands. Nánari upplýsingar eru á síðunni Tungumálanámskeið í Finnlandi.
Bankareikningur og húsnæðislán
Upplýsingar um það að opna bankareikning og um kjör húsnæðislána eru á síðunni Bankareikningur í Finnlandi.
Kaup á vöru og þjónustu
Upplýsingar um síma- og internetþjónustu og rafmagnsþjónustu í Finnlandi eru á síðunni Kaup á vöru og þjónustu í Finnlandi.
Nánari upplýsingar
Ef þú ert með spurningu skaltu fylla út eyðublaðið hérna:
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.