Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020

20.02.20 | Fréttir
Nordiska rådets litteraturpris 2020
Photographer
norden.org
13 norrænar skáldsögur, smásagnasöfn og ljóðabækur eru tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020. Tilkynnt verður um verðlaunahafann í október á verðlaunahátíð Norðurlandaráðs í Reykjavík og keppa eftirtalin fagurbókmenntaverk um hnossið.

Danmörk

Finnland

Færeyjar

Ísland

Noregur

Samíska málsvæðið

Svíþjóð

Álandseyjar

Dómnefndir skipaðar fulltrúum frá löndunum hafa tilnefnt verk til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020.

Verðlaunin verða veitt þann 27. október (uppfært 15. október)

Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráð verður kynntur þann 27. október í sérstökum sjónvarpsþætti sem verður sendur út á öllum Norðurlöndum. COVID-19 kom í veg fyrir afhendingu verðlaunanna á Íslandi en þess í stað verður stafræn verðlaunahátíð haldin þegar tilkynnt verður hverjir hljóta hin fimm verðlaun Norðurlandaráðs.. Verðlaunahafinn hlýtur að launum verðlaunagripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur.

Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.

Markmið hinna fimm verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála.