Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2019

07.09.19 | Fréttir
Nordic Council Environment Prize 2019

Nordic Council Environment Prize 2019

Photographer
JumpStory
Ljótt grænmeti, prjónapeysur, umhverfismerki fyrir orkuiðnað og einn áhrifamesti táningur heims eru á meðal tilnefninga til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

Norðurlönd eru með stærstu neytendum heims þegar kemur að efnisfrekum varningi og þjónustu. Því er þema umhverfisverðlaunanna í ár sjálfbær neysla og framleiðsla – tólfta sjálfbærnimarkmið SÞ.

Fjölbreyttar tillögur

Markmiðið er að heiðra snjöllustu og árangursríkustu verkefnin á Norðurlöndum sem leggja grunn að sjálfbærari framtíð.

„Sjálfbær neysla og framleiðsla snertir mörg svið samfélagsins. Það var því einstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreyttar tillögur bárust. Öll þessi góðu verkefni og raddir sýna glöggt að Norðurlönd geta breytt neyslumynstri sínu,“ segir Ethel Forsberg, formaður dómnefndarinnar.   

Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Íslands, kynnti verkefnin sem tilnefnd eru til umhverfisverðlaunanna í ár á lýðræðishátíðinni LÝSU á Akureyri.

„Á okkar tímum er umræðan um loftslagsmál oft á neikvæðum nótum, og skiljanlega. Verkefnin sem hafa hlotið tilnefningu í ár eru leiðarljós sem gefa framtíðinni bjartari blæ. Þau bera hvert um sig vitni um einstakt hugvit og útsjónarsemi og virka sem hvatning til okkar allra til að skapa eitthvað nýtt og feta aðrar slóðir,“ segir Sigurður Ingi. 

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2019

* Greta Thunberg er tilnefnd af bæði Svíþjóð og Noregi