Skráning í þjóðskrá á Álandseyjum

Folkbokföring på Åland
Hér er að finna upplýsingar um skráningu í þjóðskrá, kennitölur, tilkynningar um flutning og heimasveitarfélag þegar flutt er til Álandseyja. Í Finnlandi og á Álandseyjum er þjóðskrá einnig nefnd almannaskráning.

Almennt gilda sömu reglur um skráningu á Álandseyjum og í Finnlandi. Finna má almennu reglurnar á síðunni um flutningstilkynningu og tilkynningu til þjóðskrár í Finnlandi.

Ef þú flytur til Álandseyja til að eiga þar fasta búsetu gildir undantekning um Finnland sem þú getur kynnt þér undir „Herskylda“ hér fyrir neðan.

Ef þú flyst til innan Norðurlanda

Á Álandseyjum er það ráðuneyti Álandseyja sem hefur umsjón með flutningstilkynningum og skráningu í þjóðskrá. Á síðu þess um skráningu í þjóðskrá er að finna tengla á stofnun og stafvæðingu og manntal og samskiptaupplýsingar fyrir skráningaryfirvöldum ef spurningar vakna við flutning til Álandseyja.

Herskylda

Þeir sem njóta heimabyggðarréttar og sem hafa flutt til Álandseyja fyrir 12 ára aldur eru undanskildir herskyldu.

Nánari upplýsingar

Hafðu samband við yfirvöld

Ef þú hefur spurningar um skráningu í þjóðskrá geturðu haft samband við skráningarskrifstofu ráðuneytis Álandseyja

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna