Skattar á Álandseyjum

ekonomi-1
Photographer
Magnus Fröderberg
Á þessari síðu má finna upplýsingar um almenna og takmarkaða skattskyldu á Álandseyjum, skattkort, skattskýrslu og aðstæður þegar vinnuveitandi er í öðru landi en Finnlandi/Álandseyjum eða þegar finnskur/álenskur vinnuveitandi sendir starfsmann til annars norræns lands. Einnig eru gefnar upplýsingar um skattfrádrátt og hvar þú sækir skattkortið þitt á Álandseyjum.

Almenna reglan er að þú greiðir skatt í því landi sem þú starfar í. Á tenglinum hér að neðan um skatta í Finnlandi finnur þú nákvæmar leiðbeiningar um skatta fyrir fólk sem flytur til Álandseyja/Finnlands. Þú getur meðal annars lesið þér til um skattlagningu tekna, almenna skattskyldu og takmarkaða skattskyldu, skattlagningu fjármagnstekna sem og um erfða- og gjafaskatt. Á hinum tenglinum finnur þú ítarlegar upplýsingar frá skattayfirvöldum um skattlagningu launafólks sem flyst til Finnlands.

Hvar fæ ég skattkort á Álandseyjum?

Til að geta greitt skatt af launum þínum þarf vinnuveitandi þinn skattkort sem þú færð frá skattstofu Álandseyja í Maríuhöfn. Muntu að hafa meðferðis gild persónuskilríki.

Frádráttur á Álandseyjum

Á Álandseyjum er leyfilegt að draga frá skatti kostnað við húsnæði vegna vinnu, nám, námslán og sjúkrakostnað. Nánari upplýsingar fást hjá skattstofu Álandseyja eða á skattskýrslufylgiblaðinu „Ålandsbilagan“ nr. 17, 3017r. Hægt er að gera grein fyrir frádrætti á skattskýrslufylgiblaðinu „Ålandsbilagan“ eða með vefþjónustu skattayfirvalda.

Þú getur lesið þér til um allan frádrátt á vefsíðu skattayfirvalda um skattlagningu á Álandseyjum.

Á síðunni má meðal annars finna upplýsingar um frádrátt fyrir ferða- og leigukostnað, sjúkrakostnað, námskostnað, námslán, sjómennskustörf og atvinnu- og lífeyristekjur, grunnfrádrátt, frádrátt af útsvari sveitarfélaga fyrir lífeyristekjur, frádrátt fyrir húsnæði í sveitarfélagi vinnustaðar, upplýsingar um útsvar sveitarfélaga og fleira.

Hvaða reglur gilda ef þú býrð í einu norrænu landi en starfar í öðru?

Nordisk eTax er samvinnuverkefni skattyfirvalda á Norðurlöndum. Hjá Nordisk eTax starfa sérfræðingar skattyfirvalda á Norðurlöndum um alþjóðleg skattamál. Kynntu þér hvaða skattareglur gilda ef þú býrð í einu norrænu landi en starfar í öðru.

Þú býrð á Álandseyjum og starfar í öðru norrænu landi:


Þú starfar fyrir einkaaðila 


Þú starfar fyrir hið opinbera 


Þú starfar sem listamaður eða íþróttamaður 


Þú starfar í Danmörku eða Noregi 


Þú starfar í flugáhöfn 


Þú starfar sem sjómaður sem siglir á milli landa 

Þú starfar á Álandseyjum/í Finnlandi og býrð í öðru norrænu landi: 


Þú starfar fyrir einkaaðila 


Þú starfar fyrir hið opinbera 


Þú starfar sem listamaður eða íþróttamaður 


Þú starfar í flugáhöfn

Þú starfar sem sjómaður sem siglir á milli landa

Á síðunum stendur „Finnland“ en upplýsingarnar eiga einnig við um Álandseyjar. Smelltu á tengilinn „Starfað í öðru landi“ hér fyrir neðan og veldu þann kost sem á við um þig.

Nánari upplýsingar:

Hafðu samband við yfirvöld

Ef þú hefur spurningar um skatta á Álandseyjum geturðu haft samband við skattayfirvöld

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna