Undirhópar Norræna vinnuhópsins um hringrásarhagkerfi (NCE)

Umboð Norræna vinnuhópsins um hringrásarhagkerfi (NCE) felur í sér vinnu á víðu sviði og á ólíkum fagsviðum. Þess vegna hafa verið stofnaðir undirhópar/sérfræðingahópar til þess að leggja til sérfræðiþekkingu frá mismunandi fagsviðum og stuðla að því að koma á fót eða framkvæma viðburði/verkefni sem tengjast árlegum starfsáætlunum NCE.

Fjöldi undirhópa/sérfæðingahópa getur breyst og tengist viðburðum/verkefnum NCE frá ári til árs.

Undirhópur um fámenn samfélög

Tilgangurinn með undirhópnum um fámenn samfélög er að efla sjálfbæra þróun í fámennum norrænum samfélögum ásamt því að vera vakandi fyrir umhverfisaðstæðum sem skipta máli fyrir fámenn samfélög á Norðurlöndum og Norðurskautinu, sérstaklega varðandi sjálfbæra neyslu og hringrásarhagkerfi, þar með talið skilvirkni varðandi nýtingu auðlinda og forvarnir gegn myndun úrgangs.

Í samstarfsáætluninni um umhverfis- og loftslagsmál 2019-2024 er áhersla lögð á að samþætta sjónarmið fámennra samfélaga í norrænu umhverfis- og loftslagssamstarfi og mikilvægi þess að miðla reynslu milli fámennra samfélaga á Norðurlöndum.

Tengiliður: Sigurbjorg Sæmundsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Íslandi

Undirhópur um bestu fáanlegu tækni (BAT)

BAT-hópurinn vinnur að því að auka þekkingu á skilvirkri og sjálfbærri framleiðslu sem forsendu fyrir sjálfbæru samfélagi. Norrænt samstarf um bestu fáanlegu tækni (best available technology - BAT) þjónar tvennum tilgangi:

  1. Að safna upplýsingum um BAT og hreinni tækni fyrir atvinnugeira þar mörg norræn fyrirtæki starfa, sérstaklega lítil og meðalstór.
  2. Að Norðurlöndin setji sameiginlegt mark sitt á vinnu ESB við að þróa BREF-skjöl (EU Best Available Techniques reference documents).

Tengiliður: Mikael Stjärnfelt, umhverfis- og heilbrigðisyfirvöld Álandseyja, Álandseyjum  

Norrænn sérfræðingahópur vegna EU Environmental Footprint (NEF)

Meginmarkmið hópsins er að samræma starf stjórnvalda á Norðurlöndum í tengslum við verkefni framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins um að koma á fót sameiginlegri samræmdri aðferð við framkvæmd heildstæðrar lífsferilsgreiningar (LCA) á framleiðslu eða ferli vegna umhverfisspors framleiðsluvöru (PEF) og samtaka (OEF).Talið er að samræmdar aðferðir séu forsenda þess að byggja upp „markað fyrir græna framleiðsluvöru“.   Sérfræðingahópurinn hefur alþjóðleg áhrif með því að taka þátt í starfi Evrópusambandsins á þessu sviði og er mikilvægur vegna þess áherslusviðs NCE að styrkja vinnu að vöruhönnun og miðla umhverfisþáttum vörutegunda til markaðarins.

Tengiliður: Gert Sønderskov Hansen, Miljøstyrelsen (Umhverfisstofnun), Danmörku

Undirhópur um úrgang

Undirhópi um úrgang er ætlað að aðstoða Norræna vinnuhópinn um hringrásarhagkerfi (NCE) í vinnu varðandi meðhöndlun úrgangs undir Norrænu ráðherranefndinni eftir skipulagsbreytingar á vinnuhópi um sjálfbæra framleiðslu (HKP) og úrgangshópnum (NAG).

Undirhópur um úrgang skal fylgja eftir frumkvæði NCE, verkefnum hópsins og pöntunum, auk þess að hafa sjálfur frumkvæði að viðburðum og verkefnum á sviði úrgangsmála. Hópurinn vinnur meðal annars að verkefni um að draga úr matarsóun á Norðurlöndum og að því að draga úr losun örplasts. Markmið með vinnu á sviði úrgangsmála undir Norrænu ráðherranefndinni skulu vera skýr og með augljósa faglega tengingu.

Tengiliður: VÆNTANLEGUR