Almannatryggingar á Álandseyjum

Familjeliv
Photographer
Yadid Levy
Hér finnur þú upplýsingar um greiðslur úr félagslega kerfinu, sjúkradagpeninga, lífeyri, húsnæðisbætur, sjúkrabætur og endurhæfingu á Álandseyjum.

Stofnunin sem hefur umsjón með almannatryggingagreiðslum á Álandseyjum og í Finnlandi heitir Folkpensionsanstalten (FPA).

Hvað eru almannatryggingar?

Að vera tryggð(ur) í landi þýðir að þú nýtur réttinda í almannatryggingakerfis þess lands. Almenna reglan er að fólk er tryggt í því landi sem það starfar í.

Almannatryggingar tryggja fjárhagslegt öryggi fjölskyldna, fólks á eftirlaunaaldri og fólks með fötlun, fólks sem hefur lent í vinnuslysi og fólks með sjúkdóm.

Þú þarft að vita hvaða land ber ábyrgð á almannatryggingum þínum þegar þú flytur.

Ef þú flytur til Álandseyja/Finnlands til að eiga þar fasta búsetu nýtur þú yfirleitt réttinda FPA frá deginum þegar þú fluttir.
Þegar þú sækir um bætur leggur FPA mat á því hvort þú teljist hafa fasta búsetu á Álandseyjum/í Finnlandi eða hvort þú njótir réttinda hjá FPA á grundvelli atvinnu. Matið á því hvar þú telst hafa búsetu getur til dæmis grundvallast á flutningum aftur til landsins, langtímavinnu á Álandseyjum/í Finnlandi eða nánum fjölskylduböndum við einstakling sem býr á Álandseyjum/í Finnlandi. FPA getur einnig metið búsetu sem fasta búsetu ef þú hefur áður búið á Álandseyjum/í Finnlandi í eitt ár.

Almannatryggingagreiðslur

Þú getur sótt um bætur frá FPA og FPA-kortið í netþjónustu FPA. Ef þú hefur flutt til Álandseyja/Finnlands og ekki áður sótt um bætur frá FPA eða FPA-kort þarftu að senda inn tilkynningu um flutning til Álandseyja/Finnlands til viðbótar við umsókn um bætur eða FPA-kort. Sendu inn tilkynningu. Þú færð skriflega ákvörðun um bætur senda á heimilisfangið sem þú gafst upp. Ef þú telst hafa flutt til Álandseyja/Finnlands til að eiga þar fasta búsetu færðu FPA-kort. Þú getur athugað stöðu umsóknar þinnar og hvort þú njótir réttinda í almannatryggingakerfinu í netþjónustu FPA. Ef þú átt netbankanúmer fyrir banka á Álandseyjum/í Finnlandi geturðu valið að sækja um í netþjónustu FPA. Nálgast má umsóknareyðublöð á vefsvæði FPA, þar sem hægt er að fylla þau út, prenta og senda í pósti til FPA, PB 10, 00056 FPA.

Nánari upplýsingar

Hafðu samband við yfirvöld

Ef þú hefur spurningar um réttindi þín til bóta frá FPA þegar þú býrð eða starfar á Álandseyjum getur þú haft samband við FPA

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna