Ökuskírteini á Álandseyjum

On the road
Photographer
Eivind Sætre/norden.org
Hér geturðu lesið um hvaða reglur gilda ef þú flytur til Álandseyja og ert með ökuskírteini eða ef þú vilt eða þarft að útvega þér nýtt ökuskírteini.

Ef þú flytur til að dvelja tímabundið á Álandseyjum getur þú haldið áfram að nota ökuskírteinið frá heimalandi þínu.

Erlend ökuskírteini á Álandseyjum

Þér er leyfilegt að keyra fólksbíl á Álandseyjum með ökuskírteini sem gefið var út í einu af Norðurlöndunum eða öðru landi innan ESB eða EES. Ef ert með fasta búsetu á Álandseyjum getur þú skipt ökuskírteininu þínu út fyrir ökuskírteini frá Álandseyjum ef þú vilt. Skipt er um ökuskírteini hjá lögregluyfirvöldum Álandseyja. Upplýsingar um gjöld fást hjá lögreglunni á Álandseyjum.

Ef þú ert með ökuskírteini frá Færeyjum eða Grænlandi getur þú ekið fólksbíl með því ökuskírteini í eitt ár frá því að þú kemur til Álandseyja. Að einu ári liðnu er ekki hægt að skipta ökuskírteininu út fyrir ökuskírteini frá Álandseyjum heldur þarftu að sækja um álenskt ökuskírteini til að halda áfram að keyra á Álandseyjum. Þá þarftu að fara í bæði bóklegt og verklegt ökupróf. Hafðu samband við lögregluyfirvöld Álandseyja til að fá upplýsingar um hvaða reglur gilda um þig.

Snúðu þér til lögreglunnar á Álandseyjum til að sækja um ökuréttindi, endurnýja ökuskírteini, skipta út ökuskírteini eða breyta flokki ökuréttinda. Erlent ökuskírteini sem gefið var út eftir að þú hófst fasta búsetu á Álandseyjum gilda ekki á Álandseyjum. Hafðu samband við lögreglu til að fá upplýsingar um hvaða reglur gilda um þig.

Sótt um álenskt ökuskírteini

Ef þú þarft að fá nýtt ökuskírteini á Álandseyjum þarftu að fara í ökunám í umferðarskóla eða hjá leiðbeinanda sem hefur til þess réttindi. Snúðu þér til lögreglunnar á Álandseyjum til að sækja um ökuréttindi. Áður en þú byrjar ökunámið þarftu einnig að hafa samband við bifreiðastofu (Fordonsmyndigheten). Fordonsmyndigheten heldur bæði bóklega prófið og verklega prófið.

Nánari upplýsingar:

Hafðu samband við yfirvöld

Ef þú hefur spurningar um það hvernig á að sækja um ökuskírteini, endurnýja ökuskírteini eða skipta um ökuskírteini getur þú haft samband við lögregluna á Álandseyjum

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna