CSW67: Norðurlönd eru reiðubúin að stuðla að kynjajafnrétti

sju jämställdhetsministrar
Photographer
norden.org
Markmið samnorrænu sendinefndarinnar á þingi nefndar Sameinuðu þjóðanna um stöðu kvenna (CSW) í New York er að tala fyrir kynjajafnrétti og kynna norrænar lausnir á kynbundnu ofbeldi á netinu og kynbundnum eftirlaunamun.

Samnorræna sendinefndin hyggst efna til pallborðsumræðna með norrænu jafnréttisráðherrunum, auk tvennra pallborðsumræðna með sérfræðingum. Öllum er velkomið að vera með!  

Nefnd SÞ um stöðu kvenna (CSW), sem heldur þing sitt 6.-17. mars 2023, er alþjóðastofnun og helgar sig því að bæta stöðu kvenna um heim allan. Forgangsþemað í ár er nýsköpun, tæknibreytingar og menntun á stafrænum tímum þar sem markmiðið er að ná fram kynjajafnrétti og valdefla allar konur og stúlkur. Í samnorræna starfinu verður einblínt á aukið öryggi fyrir öll í netheimum og leiðir til að brúa eftirlaunabilið.

Pushing back the push-back - norrænar lausnir á kynbundnu ofbeldi á netinu

Dagsetningar: 06.03.2023

Tími: 13:15 - 14:30 (EST)

Velkomin á þennan viðburð á 67. þingi nefndar um stöðu kvenna þar sem norrænir jafnréttisráðherrar, undir forystu forsætisráðherra Íslands, ræða um norrænar lausnir til að gera netheima öruggari fyrir öll. Norðurlönd eru reiðubúin að snúa vörn í sókn í baráttunni fyrir kynjajafnrétti!

Horfðu á streymi í beinni

Efnahagslegt kynjajafnrétti strax! Norrænar leiðir til að brúa lífeyrisbilið

Dagsetning: 07.03.2023

Tími: 15:00 - 16:15 (EST)

Þótt norrænar konur séu almennt vel menntaðar og taki virkan þátt á vinnumarkaðnum skilar það sér ekki endilega í kynjajafnrétti þegar kemur að eftirlaunum. Þökk sé viðleitni til að stuðla að jöfnum launum og fæðingarorlofi beggja foreldra hefur náðst góður árangur í því að tryggja efnahagslega valdeflingu kvenna á eftirlaunaaldri. En hvernig mótum við jafnframt lífeyriskerfi sem stuðla að kynjajafnrétti?

Horfðu á streymi í beinni

Ofbeldi á internetinu - Aðferðir frá Norður- og Eystrasaltslöndum til að berjast gegn kynbundnu ofbeldi

Dagsetning: 08.03.2023

Tími: 11:30 - 12:45 (EST)

Sláist í hóp með sérfræðingum frá Norður- og Eystrasaltslöndum í umræðum um hvað megi betur fara og hvað skuli hafa forgang til að vernda mannréttindi og kynjajafnrétti á netinu.

Þessi viðburður á 67. þingi nefndar um stöðu kvenna er haldinn á vegum ríkisstjórnar Lettlands og norrænu ráðherranefndarinnar.

Horfðu á streymi í beinni

Þetta er nefndin um stöðu kvenna

Sextugasta og sjöunda þing nefndarinnar um stöðu kvenna, CSW67, verður sett í höfuðstöðvum SÞ í New York. 

Nefndin um stöðu kvenna (CSW) er alþjóðleg stofnun samstarfsríkja sem er eingöngu helguð kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna. Nefndin gegnir lykilhlutverki í því að stuðla að réttindum kvenna, skrásetja veruleika kvenna víðsvegar um heiminn og móta alþjóðlega staðla um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna.

Nefndin er starfsnefnd innan Efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) og var stofnuð með ályktun ráðsins nr. 11(II) frá 21. júní 1946.

Árið 2023 hefur nefndin eftirfarandi forgangs- og endurskoðunarþemu fyrir 67. þing sitt.

  • Forgangsþema: Nýsköpun, tæknibreytingar og menntun á stafrænum tímum þar sem markmiðið er að ná fram kynjajafnrétti og valdefla allar konur og stúlkur.
  • Endurskoðunarþema: Áskoranir og tækifæri til að ná fram kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna í dreifbýli (ályktanir samþykktar á sextugustu og öðru þingi).