Norðurlandaráð
Norðurlandaráð er opinber samstarfsvettvangur norrænu þjóðþinganna. Norðurlandaráð er skipað 87 norrænum þingmönnum sem valdir eru úr hópi þingmanna á þjóðþingunum átta. Frá árinu 1952 hefur Norðurlandaráð unnið að því að efla samstarf á Norðurlöndum með tillögum að aðgerðum sem miða að því að bæta daglegt líf Norðurlandabúa, efla hlutverk Norðurlanda á alþjóðavettvangi og stuðla að sameiginlegum lausnum á norrænum áskorunum.