20 stjórnsýsluhindranir í forgang
Norrænir borgarar sem eiga rétt á samgönguþjónustu í heimalandi sínu, öðlast ekki sjálfkrafa rétt á sams konar þjónustu annars staðar á Norðurlöndum. Fólki með fötlun reynist því erfiðara en ella að nýta sér frjálsa för milli landa.
Norræna stjórnsýsluhindranaráðið starfar í umboði stjórnvalda að því að stemma stigu við hindrunum sem bitna á atvinnu og hagvexti á Norðurlöndum.
Ráðið fundaði í Kaupmannahöfn 31. mars s.l. og valdi þá stjórnsýsluhindranir frá öllum löndunum, samtals tuttugu hindranir, sem settar skyldu í forgang. Nú er hafist handa við að leita til viðkomandi ráðuneyta og ráðherra og beita sér fyrir afnámi hindrananna.
Greitt fyrir hreindýrabúskap
Svein Ludvigsen er fulltrúi Noregs í ráðinu og jafnframt formaður þess. Þau Eva Tarselius Hallgren frá Svíþjóð leggja áherslu á tvær stjórnsýsluhindranir sem snerta hreindýrabúskap á landamærasvæðum Noregs og Svíþjóðar.
Í fyrra átti Stjórnsýsluhindranaráðið þátt í því að sænsk ökuskírteini á snjósleða öðlust gildi einnig í Noregi.
„Stjórnsýsluhindranaráðið er augljóslega vettvangur sem beitir sér fyrir skjótri lausn mála,“ segir Eva Tarselius Hallgren.
Verkmenntun ungs fólks
Auk þess sem áhersla er lögð á tuttugu stjórnsýsluhindranir verða samráðsfundir haldnir í löndunum með aðilum vinnumarkaðarins.
„Þar verður fjallað sérstaklega um hindranir sem tengjast verkmenntun ungs fólks. Forsætisráðherrarnir skrifa í starfsumboði okkar að við eigum að auðvelda ungu fólki að fóta sig á vinnumarkaði,“ segir Svein Ludvigsen.
- Lesið um sjö stjórnsýsluhindranir sem rutt var úr vegi í fyrra: Ársskýrsla Stjórnsýsluhindranaráðsins 2016
Hér á eftir eru taldar upp hindranirnar tuttugu sem Stjórnsýsluhindranaráðið leggur áherslu á:
Noregur:
- samgönguþjónusta fatlaðra;
- leiðsöguhundar á ferðalögum;
- persónulegur aðstoðarmaður við búferlaflutninga;
- flutningar á farartækjum fyrir hreyfihamlaða;
- umsókn um skattakort í Noregi;
- norskar reglur um þyrluumferð sem torvelda viðhald á hreindýragirðingum í Noregi;
- norskar tollareglur sem torvelda viðhald á hreindýragirðingum í Noregi;
- réttur á tekjutengdum atvinnuleysisbótum í Svíþjóð eftir endurhæfingarlífeyri í Noregi.
Svíþjóð:
- norskar reglur um þyrluumferð sem torvelda viðhald á hreindýragirðingum í Noregi;
- norskar tollareglur sem torvelda viðhald á hreindýragirðingum í Noregi;
- aldursmörk fyrir skráningu í sænskan atvinnuleysistryggingasjóð.
Finnland:
- verðmætaflutningar yfir landamæri;
- réttur á atvinnuleysisbótum eftir launalaust leyfi og uppsögn úr starfi í Noregi/Finnlandi;
- virðisaukaskattur við innflutning á verkfærum iðnaðarmanna.
Ísland:
- viðurkenning á fæðingarorlofi samkynhneigðra foreldra.
Grænland:
- erlend vinnuverndarmenntun er ekki viðurkennd á Grænlandi;
- ESB-reglur koma í veg fyrir útflutning frá Grænlandi um Danmörku.
Álandseyjar
- takmarkaðir möguleikar sænskra lækna á að fara í starfsnám á Álandseyjum.
Danmörk
- viðurkenning starfsréttinda;
- reglur um byggingarstaðla.