Aukið lögreglusamstarf á Norðurlöndum

01.06.18 | Fréttir
MR-Lov Lund i Sverige 2018
Photographer
norden.org/André Jamholt
Norrænu dómsmálaráðherrarnir vilja auka lögreglusamstarf milli norrænu ríkjanna, til að mæta vaxandi ógn af skipulagðri brotastarfsemi þvert á landamæri.

Norrænu dómsmálaráðherrarnir skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu þess efnis að samstarf milli ríkjanna yrði tekið skrefi lengra og leitast eftir nánara og skilvirkara samstarfi á sviði löggæslu. Áhersla verður lögð á löggæslu á sveitafélagsstigi á svæðum sem liggja að landamærum og að greiða fyrir sameiginlegum lögregluaðgerðum.

-Viljayfirlýsingin er mikilvægt skref í átt að nánara lögreglusamstarfi á Norðurlöndum. Samstarfið gerir löndin betur í stakk búin til að uppgötva, rannsaka og berjast gegn lögbrotum, segir Morgan Johansson, dómsmála- og innanríkisráðherra Svíþjóðar.

Mikilvægt er að lögreglan geti sinnt löggæslu þvert á landamæri og tekið þátt í aðgerðum lögreglusveita í nágrannalöndum.

Dómsmálaráðherrarnir vilja að þær heimildir til eftirlits og eftirfarar þvert á landamæri sem til eru innan núverandi reglugerða séu nýttar til fullnustu. Þá vilja ráðherrarnir ræða hvort hægt sé að víkka út slíkar heimildir.

Fyrirbyggjandi aðgerðir

Ráðherrarnir kalla líka eftir því að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn glæpastarfsemi sé hrint af stað og að viðeigandi aðilar séu hafðir með í ráðum, til dæmis þau sveitafélög sem liggja að landamærum.
Í yfirlýsingunni er einnig lögð áhersla á mikilvægi sameiginlegra æfinga og upplýsingaflæðis, enda tryggi það að ríkin hafi sem líkasta mynd af stöðunni.

- Ég er ánægður með að norrænu ríkin hafi nú skrifað undir viljayfirlýsingu um nánara lögreglusamstarf. Öll ríkin munu njóta góðs af nánara samstarfi á þessu sviði og að landamæri standi ekki í vegi fyrir góðum lausnum og sem bestri nýtingu á fjármunum, segir Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Viljayfirlýsingunni er ekki ætlað að vera lagalega bindandi. Hugmyndin er að yfirvöld vinni saman með ýmsum hætti og reyni að fjarlægja þær hindranir sem gætu verið í vegi fyrir nánara samstarfi.

Ráðherrarnir munu fylgja verkefninu eftir og munu leggja fram skýrslu um framgang verkefnisins á næsta fundi sínum, árið 2019.