Flugt hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2021

02.11.21 | Fréttir
”Flugt” fick Nordiska rådets filmpris 2021

”Flugt” fick Nordiska rådets filmpris 2021

Photographer
Norden.org/Magnus Fröderberg
Danska kvikmyndin Flugt hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2021 fyrir verk þar sem hið fagurfræðilega, pólitíska og mannlega fer saman í áhrifamikilli og listrænni heild. Myndin er teiknuð heimildarmynd sem varpar upp mikilvægum spurningum um innflytjendamál.

Leikstjórinn og handritshöfundurinn Jonas Poher Rasmussen, handritshöfundurinn Amin og framleiðendurnir Monica Hellström, Charlotte de la Gournerie og Signe Byrge Sørensen tóku við verðlaununum úr hendi leikarans Davids Dencik í beinni útsendingu frá verðlaunahátíðinni í Skuespilhuset í Kaupmannahöfn á þriðjudagskvöld.

Rökstuðningur dómnefndar

Sjaldgæft er að sjá fagurfræði, stjórnmálum og mannúð fléttað saman á jafn áhrifamikinn og listrænan hátt og í kvikmyndinni Flugt. Í þessari teiknuðu heimildamynd segir æskuvinur leikstjórans, Amin, átakamikla sögu sína í fyrsta sinn. Amin er samkynhneigður karlmaður sem kom til Danmerkur sem hælisleitandi á barnsaldri frá Afganistan, og þegar hann hefur frásögnina stendur hann á tímamótum: Hann er að fara að gifta sig.

Myndin vekur áleitnar og hrollvekjandi spurningar um málefni flóttafólks á okkar tímum, en gerir áhorfandanum um leið auðvelt að samsaga sig hinni tilvistarlegu óvissu sem Amin stendur frammi fyrir og sem kvikmyndin styður við með úthugsuðum og stundum kímnum næmleika fyrir smáatriðum og umgjörð.

Sú leið að beita formi teiknimyndarinnar er snilldarleg lausn á tvíþættum vanda, sem annars vegar snýr að nafnleysi aðalpersónunnar og hins vegar skorti á myndefni. Fáguð frásagnaraðferð skilar sér í tilfinningaþrunginni upplifun áhorfandans sem fylgist með hamingjuríkum uppvexti Amins í Afganistan fram að háskalegum flótta til Evrópu. Hann kemst loks til Danmerkur, þar sem hann leitast við að búa sér öruggan samastað í tilverunni.

Kvikmyndin Flugt segir þarfa, mikilvæga og hjartnæma sögu um það hvernig allar manneskjur eiga rétt á hamingjuríkri æsku og öruggum stað að búa á, óháð uppruna, bakgrunni, aldri eða kynhneigð. Myndin var gerð áður en fjöldi fólks neyddist til að flýja Afganistan fyrir skömmu vegna átaka og hafa þeir atburðir aðeins aukið á mikilvægi hennar. Leikstjóranum tekst þrátt fyrir allt að forðast alla sjálfsvorkunn eða óþarfa tilfinningasemi í frásögninni.

Myndin vann verðlaunin „Grand Jury Prize“ í flokknum „World Cinema Documentary“ á Sundance-kvikmyndahátíðinni og vann verðlaun sem besta myndin í fullri lengd á alþjóðlegu teiknimyndahátíðinni í Annecy. Henni er spáð mikilli velgengni um allan heim á komandi ári. Þá velgengni teljum við í dómefnd kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs að myndin verðskuldi fyllilega. Við erum því á einu máli um það að Flugt skuli hljóta kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2021.

 

Titill á frummáli: Flugt

Leikstjóri: Jonas Poher Rasmussen

Handritshöfundar: Jonas Poher Rasmussen og Amin

Framleiðendur: Monica Hellström, Charlotte de La Gournerie, Signe Byrge Sørensen

Sjáið Jonas Poher Rasmussen taka við kvikmyndaverðlaununum í Kaupmannahöfn

Um verðlaun Norðurlandaráðs

Norðurlandaráð veitir fimm verðlaun ár hvert: bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, umhverfisverðlaun og barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Hver verðlaun nema 300 þúsundum danskra króna og eru veitt í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs.