Handhafar Emblu-matarverðlaunanna 2019

04.06.19 | Fréttir
Embla food awards 2019
Photographer
Odd Stefán

Norrænir mataráfangastaðir 2019: Gimburlombini – Nólsoy, Færeyjum

Danmörk, Finnland og Færeyjar hlutu flest verðlaun þegar norrænu matarverðlaunin „Embla“ voru veitt í annað sinn. Hinn heimskunni matvælafrumkvöðull, Claus Meyer, og upprennandi frumkvöðlar eins og Gimburlombini og Bondens Skafferi voru meðal þeirra sem hlutu verðlaunin sjö.

Stoltir verðlaunahafar matarverðlaunanna „Embla“, sem veitt voru í annað sinn, voru kynntir á sérstökum viðburði í Reykjavík. Í flokkunum sjö er lögð áhersla á hráefni, listfengi, miðlun og fólkið bak við matinn í heimi norrænnar matargerðar. Emblu-matarverðlaunin voru sett á stofn af sex norrænum landbúnaðarstofnunum árið 2017 og hlutverk þeirra er að breiða út þekkingu á norrænum matvælum.

Stoltir verðlaunahafar matarverðlaunanna „Embla“, sem veitt voru í annað sinn, voru kynntir á sérstökum viðburði í Reykjavík. Í flokkunum sjö er lögð áhersla á hráefni, listfengi, miðlun og fólkið bak við matinn í heimi norrænnar matargerðar. Emblu-matarverðlaunin voru sett á stofn af sex norrænum landbúnaðarstofnunum árið 2017 og hlutverk þeirra er að breiða út þekkingu á norrænum matvælum.

Hér eru verðlaunahafarnir:

Samkeppnin var hörð og voru allt að sjö tilnefndir í hverjum flokki. Verðlaunahafarnir eru:

Norrænn matvælaframleiðandi 2019: Grøna Oyggin, Færeyjum

Verðlaunahafinn hefur tekist á við þá áskorun að rækta grænmeti í Færeyjum með því að þróa sérstaka ræktundaraðferð fyrir óblíð veðurskilyrði. Aðgengi að hágæða framleiðslu úr heimabyggð hefur verið mikilvægt fyrir þróun færeyskrar matargerðarlistar.

 

Norrænn matvælafrumkvöðull 2019: Bondens Skafferi, Svíþjóð
Verðlaunahafinn tengir saman framleiðendur, matreiðslumenn og matvöruverslanir. Hann hjálpar bændum að koma framleiðsluvöru sinni á markað og tryggir að framleiðendur fái gott verð fyrir framleiðsluvöru sína. Skafferi vekur athygli á mikilvægi uppruna matvælanna, gæða þeirra og árstíðabundins breytileika.

 

Norrænn matvælalistamaður 2019: Ainoa Winery, Finnlandi
Verðlaunahafinn hefur fyllt upp í eyðu í norrænni matargerðalist með því að nota villt ber og önnur hágæðahráefni úr skógum til þess að búa til vín sem hefur verið vel tekið alþjóðlega og eru punkturinn yfir i-ið með matnum og skapa hreina norræna bragðreynslu.

 

Norrænn matvælamiðlari 2019: Claus Meyer, Danmörku

Claus Meyer hefur veitt danskri matarmenningu innblástur í áratugi. Í tengslum við stefnuyfirlýsinguna um ný norræn matvæli miðlar Claus Meyer af hugsjón og krafti um staðbundna framleiðslu, sjálfbærni, aðlögun og líffræðilega fjölbreytni.

 

Norrænn matur fyrir marga 2019 Anne-Birgitte Agger, Danmörku

Verðlaunahafinn er „vél með sýn“, óþreytandi að skapa tækifæri sem þjóna þeirri hugsjón að sjá eldhúsum opinberra stofnanna heillar borgar fyrir sjálfbærum, næringarríkum máltíðum sem matreiddar eru frá grunni. Hún leitast alltaf við að verja það sem veikara er fyrir og skorar á alla - frá forystufólki til námsmanna - að velja sjálfbærni og umhverfið, allt frá því sem fer á diskinn og áfram.

 

Norrænn mataráfangastaður 2019: Gimburlombini – Nólsoy, Færeyjum

Hinni litlu og afskekktu eyju Nólsoy hefur tekist að komast á kortið með því að virkja heimafólk í ferðamennsku. Heimafólkið nýtir það sem eyjan hefur upp á að bjóða á nýskapandi og nútímalegan hátt. Áður hafði fólkið yfirgefið eyjuna. Nú er það um kyrrt og tekur þátt í frásögninni um þennan áfangastað.

 

Norrænn matur fyrir börn og ungt fólk 2019: Hävikki-battle – baráttan gegn matarsóun – Motiva Oy, Finnlandi

Verðlaunahafinn hefur þróað aðferð til þess að kenna og hvetja ungt fólk til að breyta matarsóun í verðmæti og deila því á samfélagsmiðlum. Með því að nota allar hugsanlegar aðferðir og koma til móts við ungt fólk í daglegu lífi þess skapar verkefnið þekkingu og áhugahvetjandi meðvitund til þess að læra af reynslu út lífið.

Um Emblu-matarverðlaunin

Sex norrænar landbúnaðarstofnanir standa að baki Emblu sem Norræna ráðherranefndin styður einnig fjárhagslega sem hluta af áætluninni Ný norræn matargerðarlist III. Markmiðið er að lyfta norrænni matarmenningu og skapa aukinn áhuga á henni utan svæðisins.

Emblu-verðlaunin eru veitt annað hvert ár. Dómnefndir í hverju landi senda tilnefndingar í mismunandi flokkum til norrænnar dómnefndar sem tekur lokaákvörðun um verðlaunahafa.