158. Oddný G. Harðardóttir (Hovedindlæg)

Forseti og kæru félagar. Fjárhagsáætlun fyrir norrænt samstarf er afar mikilvæg og gerir okkur mögulegt að framfylgja stefnu okkar. Það er því sérstaklega mikilvægt að fjárhagsáætlunin sé ákveðin í sem mestri sátt, bæði meðal norrænna þingmanna og ráðherra. Það er því ánægjulegt að geta þess að svo hefur verið að þessu sinni við gerð fjárhagsáætlunar ráðherranefndarinnar fyrir árið 2025, sem er fyrsta ár nýrrar framkvæmdaáætlunar. 

Þegar á þemaþinginu árið 2023 í Reykjavík gafst Norðurlandaráði tækifæri til að koma með fyrstu tillögur á pólitískum vettvangi um innihald og framtíðarsýn framkvæmdaáætlunar fyrir árin 2025–2030. Samtal ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs hefur síðan haldið áfram í ýmsum myndum og skilað sér í samningstexta í september sem bæði forsætisnefnd og MRSAM hafa samþykkt og Norðurlandaráð þarf nú að taka ákvörðun um.

Við erum ánægð með að margar af þeim tillögum og áherslum sem við höfum lagt fram á undanförnum árum hafa nú verið teknar til greina og endurspeglast í áætluninni fyrir árið 2025. Það hafa þó ekki allar tillögur okkar verið teknar með og þannig er það í samningaviðræðum, maður getur ekki fengið allt sem maður vill, og við verðum líka að hafa eitthvað til að berjast fyrir og rífast um á næstu árum. Mikilvægt er að fylgja eftir kröfum okkur um gagnsæi í framsetningu fjármálaáætlunar og mati á áhrifum breytinga. Um þetta er rætt í samningstextanum og í textanum eru eftirfarandi verksvið fyrir árin 2025–2027 sérstaklega dregin fram, en þau eru: Samþætting og hreyfanleiki, stuðningur við borgaraleg samtök, börn og unglingar, menningar- og menntastarf og aukin seigla á Norðurlöndum. Það er einnig minnst á mikilvægi þess að vinna að eflingu norræns samstarfs í samgöngumálum. 

Norðurlandaráð hlakkar til nýs starfstímabils og vonast eftir sambærilegu og góðu samstarfi um fjárhagsvinnu í framtíðinni og að báðir aðilar geti unnið saman að markmiðum framtíðarsýnar til 2030. 

Í stuttu máli leggur forsætisnefnd til að þingið samþykki tillögur ráðherranefndarinnar um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2025.    

 

Skandinavisk översättning

President, kära vänner! Budgeten för det nordiska samarbetet är ytterst viktig eftersom det är den som gör det möjligt för oss att genomföra vår politik. Därför är det av största vikt att ett så stort samförstånd som möjligt uppnås om budgeten, både bland nordiska parlamentariker och på ministernivå. Det gläder mig därför att kunna säga att vi lyckades med detta den här gången i samband med utarbetandet av Nordiska ministerrådets budget för år 2025, vilket är det första året av den nya handlingsplanen.

Nordiska rådet fick redan under temasessionen i Reykjavik 2023 möjligheten att framlägga sina första politiska förslag om innehållet och visionen i handlingsplanen för perioden 2025–2030. Samtalet mellan ministerrådet och Nordiska rådet har sedan fortsatt under olika former och utmynnade i september i en överenskommelse som både presidiet och MR-SAM har godkänt och Nordiska rådet nu måste besluta om.

Vi är nöjda med att många av de förslag och prioriteringar som vi har talat för under de senaste åren nu har hörsammats och blivit en del av budgeten för år 2025. Alla våra förslag har dock inte tagits med, och det är så det går när man förhandlar, man får inte allt man vill ha, och vi måste ju också ha något att kämpa för och bråka om under de kommande åren. Det är viktigt att vi följer upp vårt krav om transparent framställning av budgeten och en konsekvensanalys av ändringarna. Detta diskuteras i överenskommelsen, och där anges följande områden som särskilt angelägna att prioritera under perioden 2025–2027: integration och mobilitet, stöd till civilsamhällets organisationer, barn och unga, kultur- och utbildningssamarbete och ökad resiliens i de nordiska länderna. Där omtalas också behovet av ett stärkt nordiskt samarbete inom transportområdet.

Nordiska rådet ser fram emot den nya arbetsperioden och hoppas på ett liknande och bra budgetsamarbete i framtiden, samt att båda partner kan samarbeta om målen som sätts upp i Vision 2030.

Kort sagt föreslår presidiet att sessionen godkänner ministerrådets förslag till Nordiska ministerrådets budget 2025.

Information

Talenummer
158
Type
Hovedindlæg
Status
Waiting for transcription
Dato