382. Bryndís Haraldsdóttir (Hovedindlæg)
Kæru vinir. Það er komið að síðasta dagskrárliðnum. Þetta hefur verið eftirminnlegt þing, bæði fyrir mig og Oddnýju sem höfum fengið að stýra þessu ári og þessu þingi, en ekki síður vona ég að það sé ykkur öllum eftirminnilegt. Ávarp Zelenskís held ég að gæti hafa verið hápunkturinn í sögu Norðurlandaráðs. Ég vona að koma hans og orð hans verði okkur hvatning til að gefa ekkert eftir í stuðningi okkar við Úkraínu.
Það var líka sérstök ánægja að fá Svjatlönu Tsíkhanoúskaju í heimsókn til okkar og ræða hennar á þinginu var grípandi og persónuleg og margt í henni sem við þurfum að fylgja eftir. Í gær fengu forsætisnefndarmenn og erlendir gestir að heyra aftur í henni á málstofu um málefni Belarús þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók einnig þátt.
Á þinginu höfðum við jafnframt í fyrsta skipti forseta írska þingsins með okkar, það er örugglega í fyrsta skipti, og kannski munum við frekar þróa samstarf okkar við Írland.
Ég ætla líka að nota tækifærið og þakka forsætisráðherrunum, utanríkisráðherrunum og samstarfsráðherrum Norðurlanda og öðrum ráðherrum, norrænum og alþjóðlegum gestum og áheyrnarfulltrúum fyrir þátttökuna og framlag þeirra í umræðum á þessu þingi.
Ég vil líka óska verðlaunahöfum Norðurlandaráðs til hamingju með verðlaunin og þakka þeim fyrir að koma hér og taka þátt í viðburðum í tengslum við þingið. Það auðgar þessa daga okkar sem stjórnmálamanna að hitta þessa öflugu norrænu listamenn sem hlutu þessi verðlaun.
Norðurlandaráð æskunnar hefur mikið verið til umræðu á þinginu. Ég hef tekið eftir því að margar af ykkar tillögum hafa á undanförnum árum ratað inn til flokkahópanna og endað sem tilmæli frá Norðurlandaráðsþinginu. Mér virðist sem Norðurlandaráð æskunnar sé að eflast með hverju ári og það verður svo sannarlega gaman að fylgjast með þessu unga fólki og sjá hvað það tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Ég spái því jafnvel að við munum kannski sjá þau á þessum vettvangi, þá aðeins eldri.
Ég ætla líka að þakka Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, fyrir að taka á móti okkur á Bessastöðum en ekki síður að koma í heimsókn til Norðurlandaráðs æskunnar á þingi þar og eiga áhugavert samtal við ungu kynslóðina.
Um 600 manns voru skráðir á þetta þing og þá eru ótaldir ýmsir gestir sem komu á fundi nefnda og flokkahópa, starfsmenn Alþingis, Reykjavíkurborgar og fyrirtækja og ekki síst fjöldi lögreglumanna sem unnu að framkvæmd þingsins með mismunandi hætti.
Það hafa verið haldnar yfir 300 ræður, svör og andsvör og greidd hafa verið atkvæði um 23 mál, ég held að þetta geti talist sem nokkuð góð afköst okkar hér.
Eins og við var að búast var endurskoðun Helsingfors-samningsins eitt af okkar stærstu umræðuefnum á þessu þingi, enda hefur það verið stórt mál hjá okkur allt þetta ár. Eins og ég sagði áðan þá er það kannski það sem ég sem forseti og varaforseti og Íslandsdeildin höfum varið hvað mestum tíma í að finna lausnir á. Ég er mjög stolt og glöð og mjög ánægð með það að okkur hafi hér tekist að afgreiða þá mikilvægu ályktun algjörlega samhljóða á þessu þingi. Það eru sterk og mikilvæg skilaboð til ríkisstjórna okkar um að það eigi að hefja endurskoðun á Helsingfors-sáttmálanum. Það eru auðvitað öryggis- og varnarmálin sem eru mjög mikilvæg en ekki síður umhverfis- og loftslagsmálin. Það að við höldum áfram að starfa saman sem átta lönd í norrænu fjölskyldunni skiptir miklu máli. Við höfum hlustað á raddir Grænlands, Færeyja og Álandseyja, við höfum heyrt ákallið frá Dönum og ég treysti því að ríkisstjórnir okkar finni farsæla lausn á því að skrifa okkur öll inn í þennan sáttmála þannig að öll geti verið stolt og glöð og þakklát fyrir sína stöðu í ráðinu.
Mér finnst líka sérstaklega gott að Mariane Paviasen og Doris Jensen séu hér á þinginu en ég viðurkenni líka að ég saknaði nærveru grænlensku ráðherranna. Það er okkur ákaflega mikilvægt að allir raddirnar heyrist í Norðurlandaráði, sérstaklega auðvitað þegar við ræðum um framtíð ráðsins og þau mikilvægu mál sem við ræddum hér varðandi norðurslóðir.
Ég vil þakka sérstaklega starfsfólki Alþingis sem ég veit að hefur lagt mjög mikið á sig við undirbúning og framkvæmd þingsins. Þá vil ég líka þakka Kristinu Háfoss og hennar teymi hjá Norðurlandaráði sem hafa unnið óþreytandi hér á síðustu dögum og vikum. Túlkarnir okkar — kærar þakkir fyrir að koma ræðum okkar á framfæri og þakka samskiptadeildunum fyrir allan þennan árangursríka undirbúning og framkvæmd.
Við eigum svo ótrúlega margt sameiginlegt og þau sameiginlegu gildi sem við byggjum okkar samfélög á þar sem allir mælikvarðar sýna að við gerum svo vel, við erum svo sterk samfélög. Við þurfum að varðveita þennan styrkleika og við þurfum að varðveita þessa samstöðu. Þar höfum við öll mikilvægu hlutverki að gegna. Ég er ákaflega bjartsýn á framtíð norræns samstarfs, á framtíð okkar gilda eftir þetta sögulega Norðurlandaráðsþing. Ég held að við göngum héðan út sem sterkari og samheldnari fjölskylda.
Það hefur verið ánægjulegt að fá að starfa sem forseti Norðurlandaráðs á þessu ári og ég hef þar notið reynslu og þekkingar okkar góða varaforseta, Oddnýjar G. Harðardóttur. Nú förum við bráðum inn í kosningar hér á Íslandi og ég veit ekki hvort ég mun geta unnið með ykkur áfram en ég alla vega sækist eftir því. En Oddný G. Harðardóttir hefur ákveðið að láta hér við sitja og gefur ekki kost á sér til þings aftur. Mig langar að nota þetta tækifæri, elsku Oddný, til að þakka þér fyrir einstaklega gott samstarf. Oddný er reynslubolti í norrænu samstarfi og það kom sér vel fyrir nýliðann mig, sem er stundum svolítið áköf og æst í að fá nýjar hugmyndir og keyra þær strax af stað, að vera með reynslu og þekkingu mér við hlið. Ég ætla að leggja til að við klöppum fyrir Oddnýju G. Harðardóttur — takk fyrir samstarfið, mín kæra.
Ég veit ekki hvort hún mun sakna okkar mikið í þingstörfunum hérna hinum megin, en ég veit, af því að hún hefur sagt mér það, að hún mun sakna Norðurlandaráðs og alls þess vinskapar sem hér hefur skapast.
Að lokum, kæru félagar, þingmenn Norðurlandaráðs. Takk fyrir samveruna. Ég vona að við höfum hér gott í farteskinu til að taka áfram inn í samtalið á okkar þjóðþingum, við okkar fjölmiðla, okkar vini og kjósendur. Við höfum skýr skilaboð frá Zelenskí, við höfum skýr skilaboð frá Svjatlönu Tsíkhanoúskaju, við höfum hér fjölda ályktana sem hafa verið samþykktar. Ég hvet okkur til að nota rödd okkar til að koma þessum mikilvægu skilaboðum á framfæri. Takk fyrir allar þessar gagnlegu umræður, góða vináttu og gott samstarf á árinu og ég hlakka til að hitta, vonandi, ykkur öll í Stokkhólmi að ári liðnu.
Ég lýsi þessu Norðurlandaráðsþingi slitið.
Skandinavisk översättning
Kära vänner! Vi har nu kommit fram till den sista punkten på dagordningen. Det här har varit en session som vi båda kommer att minnas, jag och Oddný, som har haft äran att leda arbetet under året och under sessionen, men inte desto mindre hoppas jag att ni alla kommer att minnas den. Jag tror att Zelenskyjs tal möjligtvis var höjdpunkten i hela Nordiska rådets historia. Jag hoppas att hans besök och hans ord till oss blir en uppmaning att fullt ut upprätthålla vårt stöd för Ukraina.
Det var också en stor glädje att få besök av Svjatlana Tsichanoŭskaja, och hennes tal på sessionen var gripande och personligt och innehöll ett antal saker som vi måste följa upp. I går fick medlemmar i presidiet och våra internationella gäster chansen att lyssna till henne igen på ett seminarium om Belarus, där utrikesminister Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir också deltog.
Under sessionen fick vi också för första gången besök av talmannen i det irländska [parlamentets underhus], jag tror bestämt att det är första gången, och vi kommer eventuellt att utveckla vårt samarbete med Irland vidare.
Jag skulle också vilja använda tillfället för att tacka statsministrarna, utrikesministrarna och de nordiska samarbetsministrarna, samt andra ministrar, nordiska och internationella gäster och observatörer för deltagandet och deras bidrag till debatten under den här sessionen.
Jag vill också gratulera Nordiska rådets pristagare och tacka dem för att komma hit och delta i evenemang i samband med sessionen. Våra dagar här som politiker berikas av att träffa de kraftfulla nordiska konstnärer som mottog priserna.
Ungdomens nordiska råd har fått mycket uppmärksamhet under sessionen. Jag har märkt att många av era förslag har under de senaste åren hittat vägen till partigrupperna och till slut blivit till rekommendationer från Nordiska rådets session. Jag har känslan av att Ungdomens nordiska råd blir starkare för varje år, och det blir spännande att följa dessa unga människor och se vad de tar sig för i framtiden. Jag gissar att vi kanske kommer att se dem i det här sammanhanget när de har blivit lite äldre.
Jag skulle också vilja tacka Halla Tómasdóttir, Islands president, för mottagningen på Bessastaðir, men inte minst för att vara gäst på Ungdomens nordiska råds session och ha en intressant diskussion med den unga generationen.
Runt 600 personer hade registrerat sig för sessionen, och till det får läggas alla gäster på utskotts- och partigruppsmöten, medarbetare från Alltinget, Reykjaviks stad och olika företag, och inte minst ett stort antal poliser som hjälpte till med sessionens genomförande på olika sätt.
Det blev över 300 inlägg, svar och repliker och vi röstade om 23 ärenden, vilket jag tror kan räknas som en ganska effektiv session.
Som väntat var revisionen av Helsingforsavtalet ett av de ärenden som debatterades mest vid sessionen, och den har ju tagit upp mycket av vår tid under hela året. Som jag nämnde tidigare så är det nog den frågan som jag som president, tillsammans med vicepresidenten och Islands delegation, har lagt ned mest tid på att hitta lösningar till. Det gör mig både stolt och glad och mycket nöjd att vi lyckades helt enstämmigt anta denna viktiga rekommendation under den här sessionen. Det är ett starkt och viktigt besked till våra regeringar att påbörja arbetet med att revidera Helsingforsavtalet. Säkerhet och försvar är naturligtvis stora angelägenheter, men också miljö- och klimatfrågorna. Det är högst viktigt att vi fortsätter att arbeta tillsammans som åtta länder i den nordiska familjen. Vi har lyssnat till Grönlands, Färöarnas och Ålands röster, vi har hört Danmarks anmodan, och jag litar på att våra regeringar hittar en bra lösning på hur vi alla kan skrivas in i avtalet på ett sätt som gör att vi kan alla vara stolta och glada och tacksamma för vår ställning inom rådet.
Jag är också särskilt nöjd med att Mariane Paviasen och Doris Jensen har kommit till sessionen, men jag måste erkänna att det kändes tråkigt med de grönländska ministrarnas avsaknad. Det är mycket viktigt för oss att alla röster finns med i Nordiska rådet, och det gäller förstås särskilt när vi diskuterar rådets framtid och de viktiga frågor angående Arktis som också var på dagordningen.
Jag skulle vilja framföra ett särskilt tack till Alltingets medarbetare, som jag vet har gjort ett enormt arbete i samband med förberedelser för och genomförande av sessionen. Jag skulle också vilja tacka Kristina Háfoss och hennes team på Nordiska rådets sekretariat, som har arbetat outtröttligt här under de senaste dagarna och veckorna. Våra tolkar — hjärtligt tack för att översätta våra tal, och jag tackar också kommunikationsavdelningen för effektiv planering och utförande.
Vi har så otroligt mycket gemensamt, däribland de gemensamma värden som vi bygger våra samhällen på, samhällen som fungerar så bra enligt alla indikatorer, vi har så starka samhällen. Det är en styrka och en sammanhållning som vi måste bevara. Där har vi alla en viktig roll att spela. Jag är mycket optimistisk när det gäller framtiden för det nordiska samarbetet, när det gäller framtiden för våra värden nu när denna historiska session i Nordiska rådet avslutas. Jag tror att vi går härifrån som en starkare familj med större sammanhållning.
Det har varit en stor glädje för mig att inneha rollen som president för Nordiska rådet under det här året, och att få i det sammanhanget hjälp av vår fina vicepresident Oddný G. Harðardóttir och dra nytta av hennes erfarenhet och expertis. Nu blir det snart val här på Island, och jag vet inte om jag kommer att kunna fortsätta samarbetet med er, men det är min önskan att kunna göra det. Oddný G. Harðardóttir har däremot bestämt sig för att inte fortsätta och hon kommer inte att kandidera till valet. Jag skulle vilja använda det här tillfället, kära Oddný, för att tacka dig för ett fantastiskt bra samarbete. Oddný har en lång erfarenhet i det nordiska samarbetet, och det var oerhört praktiskt för mig som var ny i detta sammanhang, och som kan ibland vara lite ivrig och entusiastisk att hitta nya idéer och börja genast utveckla dem, att ha stöd av hennes erfarenhet och kunskaper. Låt mig föreslå en applåd för Oddný G. Harðardóttir — tack för samarbetet!
Jag vet inte om hon kommer att sakna oss alltingsledamöter här på andra sidan, men jag vet däremot, eftersom hon har berättat det för mig, att hon kommer att sakna Nordiska rådet och all den vänskap som har bildats här.
Till slut, kära vänner, medlemmar i Nordiska rådet. Tack för samvaron. Jag hoppas att vi tar med oss i bagaget bra saker att föra in i debatten i våra parlament och i samtalet med våra nyhetsmedier, våra vänner och våra väljare. Vi har fått klara besked från Zelenskyj, vi har fått klara besked från Svjatlana Tsichanoŭskaja, och vi har godkänt en lång rad rekommendationer. Jag uppmanar er att använda vår röst för att sprida alla dessa viktiga budskap. Tack för den fina debatten, vänskapen och ett bra samarbete under året; jag ser fram emot att träffa er alla igen, förhoppningsvis, i Stockholm om ett år.
Jag förklarar denna session i Nordiska rådet avslutad.