1. Birgir Ármannsson (Main speech)

Forseti Norðurlandaráðsþings, ráðherrar, þingfulltrúar, borgarstjóri og aðrir góðir gestir. Það er mér sérstök ánægja að bjóða ykkur velkomin hingað til 76. þings Norðurlandaráðs í Reykjavík. Síðast þegar til stóð að halda Norðurlandsráðsþing á Íslandi geisaði heimsfaraldur og því var ekki hægt að koma saman í raunheimum. Þess í stað var þingið haldið á netinu. Þótt netfundir geti verið gagnlegir þá koma þeir aldrei í stað beinna samskipta, sérstaklega á jafn stórum viðburði eins og Norðurlandaráðsþing er, sem er auðvitað hápunktur hvers árs í norrænu samstarfi. Það var líka ánægjulegt í morgun að geta boðið þingfulltrúa í Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis, þar sem forseti Úkraínu ávarpaði okkur í morgun. Þar fer fram starf nefnda og flokkahópa ásamt fjölmörgum fundum og öðrum viðburðum. Þá vil ég nota tækifærið til þess að þakka Reykjavíkurborg og borgarstjóra fyrir afar gott samstarf við að bjóða fram húsakynni Ráðhússins sem vettvang fyrir þingfundi Norðurlandaráðsþingsins. 

Þema þingsins í ár er friður og öryggi á norðurslóðum. Því miður hefur þróunin undanfarin ár verið aukin spenna og minna öryggi í okkar heimshluta. Allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu sem við fordæmum öll hefur þétt raðir vestrænna lýðræðisþjóða og leitt til þess að frá því í mars síðastliðnum eru öll Norðurlöndin aðilar að Atlantshafsbandalaginu. Það var Alþingi mikill heiður að taka á móti Selenskí forseta fyrr í dag og ávarp hans er okkur öllum hvatning til þess að styðja Úkraínu áfram. 

Kæru þingfulltrúar. Ég vona að Norðurlandaráðsþing í Reykjavík verði árangursríkt og dvöl ykkar hér ánægjuleg. 

Ég vil biðja borgarstjórann í Reykjavík, Einar Þorsteinsson, að taka til máls.

 

Skandinavisk översättning

President av Nordiska rådet, ministrar, ledamöter, borgmästare och andra goda gäster! Det är en stor glädje för mig att hälsa er välkomna till Nordiska rådets 76:e session, som denna gång äger rum här i Reykjavik. Förra gången sessionen skulle ha hållits på Island pågick en världspandemi, vilket gjorde det omöjligt att träffas fysiskt. Istället organiserades sessionen digitalt. Även om digitala möten kan vara av stor nytta, så ersätter de aldrig direkta dialoger, särskilt inte i samband med så viktiga sammankomster som Nordiska rådets session, som naturligtvis är årets absoluta höjdpunkt i det nordiska samarbetet. Det var också mycket glädjande att kunna tidigare i dag ta emot rådets ledamöter i Smidja, Alltingets nya kontorsbyggnad, där Ukrainas president höll sitt tal till oss i morse. Den byggnaden används till utskottens och partiernas arbete, samt olika typer av möten och evenemang. Jag vill också ta tillfället i akt för att tacka Reykjaviks stad och borgmästaren för ett mycket bra samarbete i samband med att stadshuset har ställts till förfogande för Nordiska rådets plenarmöten under den här sessionen.

Temat för årets session är ”Fred och säkerhet i Arktis”. Under de sista åren har utvecklingen i vår världsdel tyvärr kännetecknats av ökad spänning och minskad säkerhet. Efter Rysslands totalinvasion av Ukraina, som vi alla har fördömt, har västvärldens demokratiska nationer tätat sina led, med det resultatet att sedan i mars i år är alla de nordiska staterna medlemmar i Nordatlantiska fördragsorganisationen. Det var en stor heder för Alltinget att ta emot president Zelenskyj tidigare i dag, och hans tal är en uppmaning till oss alla att fortsätta att stödja Ukraina.

Kära ledamöter. Jag hoppas att Nordiska rådets session i Reykjavik blir fruktbar och önskar er en trevlig vistelse här.

Jag ger ordet till Reykjaviks borgmästare, Einar Þorsteinsson.

Information

Talenummer
1
Type
Hovedindlæg
Ekstern taler
Birgir Ármannsson
Talerrolle
Parlamentsformand
Status
Transcription done
Dato