2. Einar þorsteinsson (Main speech)
Háttvirtir ráðherrar, þingforseti, þingmenn og aðrir góðir gestir. Það er heiður að fá að bjóða ykkur hjartanlega velkomin í Ráðhús Reykjavíkur á þetta mikilvæga þing Norðurlandaráðs, sem ber yfirskriftina Friður og öryggi á norðurslóðum. Aldrei áður, ekki einu sinni á tímum kalda stríðsins, hefur mikilvægi norðurslóða verið meira. Á tímum átaka þar sem stórveldin marka sér sérstöðu og gera tilkall til áhrifa sannast að smærri þjóðum farnast best þegar þær vinna saman á grundvelli alþjóðakerfis sem byggist á alþjóðalögum og reglum en Norðurlandaráð byggir á enn traustari grunni vináttu og frændsemi.
Kæru þingfulltrúar. Mig langar að bjóða Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, og hans fylgdarlið sérstaklega velkomin til Reykjavíkur. Þetta er mikilvæg heimsókn. Reykjavíkurborg tók strax skýra afstöðu. Borgarstjórn ályktaði einróma gegn áraásarstríði Rússa. Í kjölfarið slitum við systraborgarsamstarfi við Moskvu og úkraínski fáninn hefur hangið hér við hún síðan árásin var og mun gera það áfram þar til Úkraína hefur sigrað. Ísland hefur tekið á móti um 4.000 flóttamönnum frá Úkraínu og flestir dvelja þeir í Reykjavík. Við erum þakklát fyrir að fá að styðja við úkraínskar fjölskyldur með þessum hætti. Á endanum eru það nefnilega borgir og bæir á Norðurlöndunum og um alla Evrópu sem taka á móti flóttafólki, umvefja þau kærleika og veita þeim öryggi og þjónustu. Og ég vek því athygli á ykkar á mikilvægi þess, kæru þingmenn, að hafa borgar- og bæjarstjórnir við borðið þegar þið talið um stríð og frið og móttöku flóttafólks og farsælt líf þess í ykkar löndum.
Svo eru það loftslagsmálin. Sífellt örari loftslagsbreytingar hafa flýtt fyrir nauðsynlegri umræðu um það hvernig við lifum á norðurslóðum. En sú umræða má ekki aðeins snúa að yfirráðum þjóðríkja yfir auðlindum eða tækifærum sem tengjast siglingaleiðum. Á endanum snýst öryggi á norðurslóðum um öryggi fólks, íbúanna í sveitunum, í bæjunum og borgunum. Og í grunninn varða loftslagsmálin og bráðnun jökla á norðurslóðum öryggi íbúa um allan heim því að það sem gerist hér á norðurslóðum varðar alla heimsbyggðina. Verkefni ykkar er því stórt, kæra Norðurlandaráð. Ég vona að þið eigið kröftugan fund.
Velkomin til Reykjavíkur og gangi ykkur vel.
Skandinavisk översättning
Ärade ministrar, president, ledamöter och andra goda gäster! Det är en ära för mig att hälsa er hjärtligt välkomna till Reykjaviks stadshus, och till denna viktiga session i Nordiska rådet, som har temat ”Fred och säkerhet i Arktis”. Aldrig tidigare, inte ens under kalla krigets år, har Arktis spelat en så stor och viktig roll. I en tid av konflikter, där stormakterna markerar sin särställning och kräver allt större inflytande, bekräftas den sanningen att det som bäst gynnar mindre nationer är att samarbeta inom ett internationellt system som bygger på internationella lagar och regler, men Nordiska rådet arbete vilar dessutom på en ännu starkare grund av vän- och släktskap.
Kära ledamöter. Jag skulle vilja hälsa särskilt välkommen till Ukrainas president, Volodymyr Zelenskyj, och hans följe. Det är ett viktigt besök. Reykjaviks stad tog genast ställning. Kommunfullmäktige antog enstämmigt en deklaration mot Rysslands anfallskrig. Vi gjorde sedan slut på vårt vänortssamarbete med Moskva, och den ukrainska flaggan har vajat vid stadshuset sedan invasionen började och kommer att göra det ända tills Ukraina har segrat. Island har tagit emot runt 4 000 flyktingar från Ukraina, varav de flesta vistas i Reykjavik. Vi är tacksamma för att kunna ge stöd till ukrainska familjer på detta sätt. I slutändan är det nämligen städer i Norden och över hela Europa som tar emot flyktingar, omfamnar dem med kärlek och ger dem trygghet och tjänster. Och jag skulle därför, kära parlamentariker, vilja dra er uppmärksamhet till vikten av att ge kommunerna en plats vid bordet när ni diskuterar krig och fred och mottagandet av flyktingar och olika sätt att skapa ett bra liv för dem i era länder.
Sedan har vi klimatfrågan. Klimatförändringarna, som sker i allt raskare takt, har satt fart på en nödvändig debatt om våra levnadsvillkor i dessa nordliga regioner. Men den debatten får inte begränsas till staters rätt att bestämma över naturtillgångar eller den potential som nya sjörutter innebär. Säkerhet i de nordliga områdena bottnar i trygghet för invånarna, vare sig de bor i glesbygd eller stad. Debatten om klimatförändringar och avsmältningen av isen i Arktis knyter också an till säkerhet och trygghet för hela världens invånare, eftersom det som händer här i våra nordliga regioner har konsekvenser globalt. Ni står därför, kära Nordiska råd, inför en stor uppgift. Jag hoppas att ni har ett kraftfullt möte.
Välkomna till Reykjavik, och lycka till!