269. Bryndís Haraldsdóttir (Indlæg)

Ég, eins og flestir hérna inni, styð þessa tillögu. Hún er mjög mikilvæg. Þetta tengist auðvitað því sem við erum að fjalla um hér á eftir þegar við erum með tillögu um breytingar á Helsingfors-sáttmálanum því að þar erum við jú líka að leggja áherslu á það að núna getum við, Norðurlöndin, unnið saman að öryggis- og varnarmálum. Ég vildi líka nefna það að það er nú aðalástæðan fyrir því að við í formennsku Íslands settum öryggi og frið á norðurslóðum á dagskrá, vegna þess að það er svo mikilvægt að við, þetta afl, Norðurlöndin saman, vinnum saman að þessum verkefnum. Á norðurslóðum erum við með risa leikendur. Við erum með svona „power players“ sitthvoru megin við okkur. Ja, alla vega öðrum megin við okkur og sá sem er hinum megin við okkur er studdur af stóru ríki sem vill vera „near-Arctic state“. Þess vegna þurfa Norðurlöndin líka að vera saman „power players“ í þessum verkefnum og þess vegna er svo mikilvægt að við samþykkjum þessa tillögu. Við eigum svo mikið af góðum skýrslum, Bjarnasonarskýrsluna, Enestam-skýrsluna, þar sem búið er að fara yfir þetta og skrifa svolítið fyrir okkur hvernig við getum unnið enn frekar saman að þessum verkefnum. Það var augljóst í  spurningatímanum hér í gær að þingmenn eru að krefja ráðherrana okkar um aukið samstarf í öryggis- og varnarmálum og þegar við erum að tala um öryggismál erum við líka að tala um almannaöryggi. Við erum líka að tala um allt sem er til að mynda að gerast á norðurslóðum, áhrif loftslagsbreytinga á okkur, þannig að við erum að tala um samfélagslegt öryggi og þar eigum við stefnuna. Ég hlakka því til og vona að við samþykkjum þessa tillögu með miklum meiri hluta.

 

Skandinavisk översättning

Jag ställer mig bakom förslaget, som de allra flesta här. Det är ett mycket viktigt förslag. Det har förstås en koppling till det som vi ska diskutera senare i dag, det vill säga förslaget till ändringar av Helsingforsavtalet, där vi ju också fokuserar på att vi, de nordiska länderna, nu kan samarbeta om säkerhets- och försvarsfrågor. Jag skulle också vilja nämna att detta faktiskt är den största anledningen till att det isländska presidentskapet satte säkerhet och fred i Arktis på agendan, eftersom det är så viktigt att vi, denna kraft, ett samlat Norden, samarbetar om dessa uppgifter. I Arktis har vi att göra med enorma aktörer. Vi har ett slags ”power players” på vardera sidan om oss. Nja, på ena sidan i varje fall, och den som befinner sig på den andra har stöd av en stormakt som vill vara en ”near-Arctic state”. Därför måste de nordiska länderna tillsammans också vara ”power players” när det gäller dessa uppgifter, och därför är det så viktigt att vi godkänner förslaget. Vi har en mängd bra rapporter, Bjarnason-rapporten, Enestam-rapporten, där frågan har analyserats och där det finns en del vägledning om hur vi kan fördjupa vårt samarbete på detta område. Under frågestunden i går var det uppenbart att parlamentarikerna efterfrågar från våra ministrar ett ökat säkerhets- och försvarssamarbete, och när vi pratar om säkerhet då inbegriper det civil säkerhet. Det inbegriper också allt som händer till exempel i Arktis, klimatförändringarnas konsekvenser för oss; vi pratar alltså om samhällssäkerhet och där har vi ju en strategi. Jag ser således fram emot debatten och jag hoppas att vi godkänner detta förslag med stor majoritet.

Information

Talenummer
269
Type
Indlæg
Status
Waiting for transcription
Dato