Policy Brief: Clean Nordic Oceans- samstarfsnet um að draga úr mengun í hafi og veiðum drauganeta

Information

Publish date
Abstract
Samstarfsnetinu Clean Nordic Oceans var komið á fót til þess að miðla gagnkvæmri þekkingu á og reynslu af aðferðum og aðgerðum sem dregið geta úr hættunni á bæði veiðum í drauganet og mengun hafsins en auka móttöku og endurvinnslu frá bæði atvinnu- og tómstundaveiðum. Öll norrænu ríkin hafa tekið þátt í samstarfinu.Verkefnið hefur átt þátt í því að koma á tengslum bæði innan og utan Norðurlanda í þeim tilgangi að vinna gegn vandamálinu mengun hafs af völdum fiskveiða og hefur í þeim tilgangi nýtt sér eigið vefsetur (www.cnogear.org) og staðið fyrir vinnustofum, námskeiðum og ráðstefnum auk kvikmynda og samfélagsmiðla.Margt athyglisvert hefur komið fram og í skýrslunni er meðal annars bent á það að öll Norðurlöndin hafa lagt of litla áherslu á „vitund og afstöðu“ meðal sjómanna um það hvernig hægt sé að draga úr mengun í hafi. Í skýrslunni eru ýmsar aðgerðir lagðar til. Sumar þeirra gætu átt við um öll löndin en almennt séð er ekki um það að ræða að sama lausnin henti öllum.
Publication number
2020:022