348. Bryndís Haraldsdóttir (Indlæg)
Forseti. Við búum í velferðarsamfélögum hér á Norðurlöndunum og það er horft til okkar. Skólakerfin okkar eiga að vera grunnur að jafnrétti, tæki til að tryggja það að öll börn eigi sömu tækifæri. Niðurstöður úr PISA-prófunum eru algjörlega óásættanlegar hér á landi og niðurstaðan er sú að Norðurlöndin, árangur okkar fer hnignandi hjá okkur öllum. Börnin eru framtíðin okkar og það er á okkar ábyrgð sem hér sitjum að tryggja menntun þeirra og velferð. Þar eru auðvitað lestur og lesskilningur lykilatriði.
Ég þakka nefndinni fyrir að vinna svona með þessa tillögu okkar í Íslandsdeildinni og vona að hún verði samþykkt hér á eftir og það leiði af sér bættan árangur norrænna grunnskólabarna.
Skandinavisk översättning
President! I Norden bor vi i välfärdssamhällen, och man ser oss som en förebild. Våra utbildningssystem ska lägga grunden till jämställdhet, vara verktyget som garanterar samma möjligheter för alla barn. De isländska resultaten från PISA-mätningen är fullständigt oacceptabla, och statistiken visar att resultaten har försämrats i alla de nordiska länderna. Barnen är vår framtid, och det är vi som sitter här som är ansvariga för deras utbildning och välfärd. Läskunskap och läsförståelse är naturligtvis nyckeln till detta.
Jag tackar utskottet för behandlingen av förslaget, som kom från den isländska delegationen, och jag hoppas att det godkänns nu om en stund och att det kommer att leda till bättre resultat hos grundskoleelever i Norden.