365. Bryndís Haraldsdóttir (Indlæg)

Ég ætla að þakka fyrir umræðuna. Oft erum við mjög sammála en við erum í pólitík og við megum líka stundum vera ósammála þannig að það er nú stundum gaman að því að við getum tekist á, en við þurfum að sjálfsögðu að gera það málefnalega. Ég veit ekki hvort það var ég sem startaði þessari umræðu sem kom svo í kjölfarið því ég var að tala um skólana okkar sem jöfnunartæki og á sama hátt og við hér á Íslandi erum að horfa til ykkar, stærri landanna á Norðurlöndum, og læra af ykkar reynslu þá finnst mér líka mikilvægt að við sameinum krafta okkar í þessum mikilvægu málum sem eru menntamálin okkar. Ég vona að allir átti sig á því að þegar við erum að tala um niðurstöður PISA þá er staða innflytjenda greind sérstaklega þannig að við horfum bæði á fólk sem er með okkar móðurmál og svo þá sem eru með annað móðurmál og sjáum muninn þar á milli. Þar erum við á Íslandi alla vega að fara niður, líka íslensku börnin sem fædd eru á Íslandi og eru með íslensku sem móðurmál, námsárangur þeirra fer niður á við ef horft er á mælikvarða PISA. En ég tek heils hugar undir með UNR að PISA er ekki einhver allsherjarmælikvarði á gæði skólakerfisins, en það er einn mælikvarði og hann er mikilvægur. Við á Norðurlöndum höfum almennt státað okkur af því að vera best í heimi, best hvað jafnrétti varðar, góð hvað varðar umhverfismálin, velferðarsamfélagið og við eigum að sjálfsögðu að setja það mark líka þegar kemur að menntakerfinu okkar. Við erum að gera margt mjög gott í skólakerfinu en PISA-niðurstöðurnar segja okkur það að við þurfum að taka höndum saman og kanna hvað það er sem gerir það að verkum að lestur og lesskilningur barna á Norðurlöndum er að fara niður á við. Finnum lausnir á þessu og leysum þetta saman.

 

Skandinavisk översättning

Jag skulle vilja tacka för debatten. Vi är ofta samstämmiga, men vi håller på med politik och får också ha olika meningar ibland, och emellanåt kan det också vara roligt att argumentera lite, men vi måste naturligtvis göra det sakligt. Jag vet inte om det var jag som startade diskussionen som den utvecklades, eftersom jag hänvisade till våra skolor som ett verktyg för att öka jämlikheten, och precis som vi här på Island tittar till er, de större nordiska länderna, för att lära av era erfarenheter så tycker jag att det också är viktigt att vi förenar våra krafter i de viktiga sakfrågor som rör utbildning. Jag hoppas att alla har klart för sig när vi diskuterar resultaten från PISA-undersökningen att man mäter invandrares kunskaper separat, vilket betyder att vi kan jämföra resultaten hos dem som har vårt språk som modersmål med resultaten hos dem som har ett annat modersmål. Då visar det sig att åtminstone på Island har resultaten försämrats, också hos de barn som är födda på Island och som har isländska som modersmål; de presterar sämre än förut enligt PISA:s mått på kunskaper. Jag håller helt med UNR att PISA ska inte ses som ett definitivt mått på utbildningssystemets kvalitet, men det är ett mått av många och ett viktigt sådant. I Norden berömmer vi oss ofta av att vara bäst i världen, bäst när det gäller jämställdhet, bra när det gäller miljön, välfärdssamhället, och vi ska givetvis ha ett liknande mål när det kommer till våra utbildningssystem. Vi gör en hel del bra i skolsystemet, men PISA-mätningen visar oss att vi måste göra en gemensam insats för att undersöka orsaken till att nordiska barns läskunskap och läsförståelse håller på att försämras. Låt oss hitta lösningar på detta och låt oss lösa problemet tillsammans.

Information

Talenummer
365
Type
Indlæg
Talerrolle
Den Konservative Gruppe
Status
Waiting for transcription
Dato