235. Hanna Katrín Friðriksson (Replik)

Takk fyrir þessa skýrslu. Mig langar fara yfir í að ræða málefni LGBTQ-fólks. Lagaleg réttindi á Norðurlöndum eru mikil á heimsvísu, það eru kannski helst Færeyjar sem sitja þar eftir enn sem komið er. En það var ekki spurningin heldur var hún sú að þrátt fyrir þessa staðreynd þá er það önnur staðreynd og öllu verri að unglingum, LGBTQ-unglingum og -börnum líður umtalsvert verr í skólum en öðrum börnum og ungmennum. Það er nokkuð sem hefur áhrif á þætti eins og aukna tíðni sjálfsmorða, aukið brottfall úr skólum og hefur augljóslega áhrif á getu þeirra til að uppfylla eigin framtíðarsýn rétt eins og önnur börn og ungmenni á Norðurlöndum hafa færi til. Þetta er auðvitað ekki jafnrétti og mig langaði að syrja hvort þetta væri eitthvað sem þið væruð að skoða.

 

Skandinavisk översättning

Tack för redogörelsen! Jag skulle vilja vända debatten mot hbtqi-personers angelägenheter. De har omfattande lagfästa rättigheter jämfört med övriga världen, eventuellt ligger Färöarna något efter än så länge. Men frågan gäller inte det utan den gäller att trots detta faktum så är det också ett faktum, mindre positivt, att hbtqi-ungdomar och -barn mår mycket oftare dåligt i skolan än andra barn och unga. Det är en situation som påverkar andra faktorer, som den växande självmordsfrekvensen och ett ökat antal skolavhopp, och givetvis deras möjligheter att förverkliga sina framtidsförhoppningar på samma sätt som andra barn och unga i Norden. Detta är givetvis inte jämlikhet, och jag skulle vilja fråga om ni har tittat på denna problematik.