272. Bryndís Haraldsdóttir (Hovedindlæg)

Forseti. Mér finnast tvær mínútur reyndar allt of lítið til að fara yfir þetta mikilvæga mál en við skulum ræða það. 

Hér mæli ég fyrir mikilvægri tillögu, tillögu sem hefur verið unnin í ráðinu í yfir eitt ár. Ég ætla að endurtaka þakkir mínar til starfshópsins sem fór yfir þetta mál sem Hanna Katrín stýrði þegar það var klárað en það byrjaði auðvitað í tíð Norðmanna þegar þeir voru með formennskuna þannig að það eru margir sem hafa komið að þessu máli og ég vil þakka ykkur öllum fyrir þá vinnu. 

Þið skiluðuð ykkar vinnu af ykkur þegar við vorum með okkar fund í Færeyjum og ég ætla aðeins að minna okkur á það að hér erum við að leggja það til að skipuð sé norræn nefnd sem vinni tillögur að breytingum á uppfærðri útgáfu á Helsingfors-samningnum og innihaldi, að tillögu nefndarinnar, nýjar greinar. Varnir og öryggismál komi ný inn í samninginn, almannaöryggi, viðbúnaður og samfélagsöryggi komi nýtt inn, eitthvað sem ráðið er margítrekað búið að fjalla um. Einnig loftslagsmálin, réttindi barna og ungs fólks og inngilding þeirra í norrænt samstarf almennt, þar á meðal hlutverk Norðurlandaráðs æskunnar, afnám stjórnsýsluhindrana og fyrirhyggja. 

Við erum líka að fjalla um uppfærðar greinar í þessum sáttmála og ég veit að þið eruð með skjalið fyrir framan ykkur þannig að ég mun ekki fara ítarlega yfir það. Það hefur litið þannig út að við séum í mjög stórum dráttum sammála um mikilvægi þessarar endurskoðunar. Það er aðeins eitt atriði sem hefur verið umræða um og það er með hvaða hætti við tryggjum áfram að norræna fjölskyldan okkar, löndin átta sem eru í Norðurlandaráði, sé skrifuð inn í Helsingfors-sáttmálann. Ég hef ítrekað það hér í ræðum mínum á þessu þingi og í umfjöllun um það að það skiptir öllu máli. Við höfum fengið Úkraínuforseta hérna, við höfum fengið Sviatlönu Tsikhanouskayu. Við stöndum með þessu fólki. Við stöndum saman og þá verðum við líka að standa saman sem átta lönd í Norðurlandaráði. 

Ég fæ þá kannski bara frekar að koma hér upp í andsvar á eftir, frú forseti, sem er hörð á tímanum.

 

Skandinavisk översättning

President. Jag tycker faktiskt att två minuter är alltför kort tid för att redogöra för denna viktiga fråga, men låt oss göra det ändå.

Jag presenterar ett viktigt förslag, ett förslag som har bearbetats i rådet under mer än ett år. Jag skulle vilja upprepa mitt tack till arbetsgruppen som behandlade frågan, och som Hanna Katrín ledde när arbetet avslutades, men starten skedde under Norges ordförandeskap och därför är det många som har bidragit och jag vill tacka er alla för era bidrag.

Ni överlämnade ert arbete under vårt möte på Färöarna, och jag skulle bara vilja påminna oss alla om att det vi här föreslår är inrättandet av en nordisk kommission som ska få i uppdrag att utarbeta förslag till ändringar av Helsingforsavtalet, som också ska komma att innehålla nya artiklar enligt kommissionens förslag. Detta skulle innebära en utvidgning av avtalet genom nya artiklar om försvars- och säkerhetspolitik, civil säkerhet, beredskap och samhällssäkerhet, något som rådet har behandlat upprepade gånger. Även klimatfrågan, barns och ungas rättigheter och inkluderande i det nordiska samarbetet generellt, härunder UNR:s roll, samt avlägsnande och förebyggande av gränshinder.

Vi föreslår också revidering av vissa av avtalets nuvarande artiklar, och jag vet att ni har dokumentet framför er så jag kommer inte att diskutera det i detalj. Som det ser ut tycks vi stort sett vara eniga om hur viktigt det är att få till en revision. En enda sak har varit kontroversiell, d.v.s. hur vi garanterar att hela vår nordiska familj, alla de åtta länder som finns representerade i Nordiska rådet, skrivs in i Helsingforsavtalet. Jag har i mina anföranden under den här sessionen och i debatten påmint om hur viktigt detta är. Vi har fått besök av Ukrainas president och av Svjatlana Tsichanoŭskaja. Vi står i solidaritet med dessa personer. Vi står samman, och då måste vi också stå samman som åtta länder i Nordiska rådet.

Jag får kanske hellre ge replik lite senare, fru president, som håller fast vid tidsgränsen.

Information

Talenummer
272
Type
Hovedindlæg
Status
Waiting for transcription
Dato