287. Bryndís Haraldsdóttir (Indlæg)

Mig langar að þakka kærlega fyrir þessar góðu umræður sem hér hafa verið og ég finn mikinn stuðning við þessa mikilvægu vinnu sem unnin hefur verið í ráðinu allt síðasta ár. Ég get sagt það með sanni að ég og varaforsetinn Oddný og skrifstofa Norðurlandaráðs og Íslandsdeild Norðurlandaráðs - þetta hefur verið stærsta verkefni okkar á þessu ári. Mér sýnist hér vera að fæðast fullkomin tillaga sem við sendum áfram til ráðherranna og að sjálfsögðu munum við í Norðurlandaráði sjá til þess að ráðherrarnir geri það sem við erum að fara hér fram á. Þetta er fyrsta skrefið en þetta er ofboðslega mikilvægt skref og ég fagna því hvað við eigum málefnalegar og góðar umræður um þetta mikilvæga mál. Við áttum okkur á því að ekki er öllum spurningum svarað að fullu en skrefið er mikilvægt. 

Lagalegar spurningar tengjast þá fyrst og fremst Danmörku, Færeyjum og Grænlandi og þau eru búin að lýsa því yfir að þau ætli að leysa það, það þarf ekki að vera okkar vandamál. Svo kann það að vera varðandi Finnland og Álandseyjar að þau fari yfir sín mál en það er þá á þeirra borði. Saman getum við í Norðurlandaráði þá sameinast um þessa tillögu og sent þetta áfram til ráðherranna. Ég fagna þessu mjög, ég held að þetta sé stórt skref í sögu Norðurlandaráðs.

 

Skandinavisk översättning

Jag skulle vilja säga hjärtligt tack för en bra debatt, och jag känner att det finns ett stort stöd för det viktiga arbete som har pågått i rådet hela det gångna året. Jag kan utan tvekan säga att för min del, för Oddnýs del som vicepresident, för rådssekretariatet och för den isländska delegationen har detta varit vår största uppgift under året. Det ser ut till att ett fullbordat förslag som vi kan skicka till ministrarna är på väg att födas fram, och vi i Nordiska rådet kommer givetvis att se till att ministrarna genomför det som vi här rekommenderar. Det är bara första steget, men ett oerhört viktigt steg, och jag gläds över att vi har haft en så saklig och bra debatt om denna viktiga fråga. Vi vet att inte alla frågor har kunnat besvaras helt, men steget vi tar nu är viktigt.

Olösta juridiska frågor angår huvudsakligen Danmark, Färöarna och Grönland, som har tillkännagivit att de kommer att hitta en lösning, och att det inte behöver bli ett problem för oss. Det är också möjligt att Finland och Åland kommer att se över sina relationer, men det kommer i så fall att ske internt. Tillsammans kan vi i Nordiska rådet därför enas om förslaget och skicka det vidare till ministrarna. Det gläder mig enormt; jag menar att detta är en milstolpe i Nordiska rådets historia.

Information

Talenummer
287
Type
Indlæg
Status
Waiting for transcription
Dato