110. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (Svar på spørgsmål)

Forseti. Fyrst vil ég segja að við höfum auðvitað, Norðurlöndin öll, fylgt Evrópusambandinu þegar það hefur lagt viðskiptaþvinganir á. Ísland hefur gert það í einu og öllu og mun gera það áfram. Það er í mínum huga grundvallaratriði til að sýna þá samstöðu sem þarf að sýna. Ég get bara sagt að ég ætla rétt að vona að menn standi við þau orð sín, gangi lengra frekar en skemur, láti ekki brjóta á slíku og fari ekki til baka í svona "business as usual". Ég veit líka að Pútín og aðrir sem hugsa eins og hann veðja á það að samstaðan muni brotna og vinna sérstaklega í því þar sem það er líklegast að hún geri það. Og ef þeir sjá smáljós í múrsteinunum þá brjóta þeir þar og brjóta þar með samstöðuna. 

Mín skoðun er mjög skýr. Það minnsta sem við getum gert er að taka fullan þátt í viðskiptaþvingunum. Við eigum líka að styðja það þegar verið er að reyna að fylla í því göt. Það verður líka að vera hægt að segja það upphátt þegar farið er fram hjá þeim viðskiptaþvingunum. Þó að þetta sé ekki fullkomin leið þá verðum við nota tólin sem við höfum eins langt og það nær vegna þess að ekki erum við að fara með hermenn þangað inn til að berjast við þá. Þá erum við með önnur verkfæri eins og þetta og einhvern veginn verður að brjóta á því að efnahagslíf Rússlands haldi þannig stöðu að þeir geti fjármagnað það sem þeir eru að gera með vopnaframleiðslu og halda áfram að mölbrjóta alþjóðalög, stela þaðan börnum og auðvitað í leiðinni byggja áfram upp getu sína til að geta haldið áfram. Þeir hafa sagt  mjög skýrt að þeir ætli ekki að stoppa þar sem þeir eru núna og beita miklum fjölþóttaógnum í bandalagsríkjum okkar og það fer að verða spurning hvenær þú hættir að kalla það fjölþáttaógn og ferð að kalla það eitthvað annað. Það er auðvitað stærra mál og er ekki eitthvað sem Norðurlöndin ákveða ein og sér. En það sem við verðum að gera, lýðræðisríki og þau ríki sem styðja við alþjóðakerfið, er að standa saman. Það er í rauninni það eina sem við höfum og við verðum að vera sterkari en þeir. 

 

Skandinavisk översättning

President! Jag skulle vilja börja med att säga att vi har givetvis, alla de nordiska länderna, följt Europeiska unionens exempel när det gäller att införa handelssanktioner. Island har gjort det till punkt och pricka och kommer att fortsätta att göra det. Det är enligt min mening en principsak att visa den sammanhållning som är nödvändig. Jag kan bara säga att jag hoppas verkligen att man håller sina ord, att man gör mer hellre än mindre, att inga brott mot sanktionerna tillåts och att man inte går tillbaka till något slags ”business as usual”. Jag vet också att Putin och andra som tänker på samma sätt som han nu satsar på att sammanhållningen brister, och försöker bidra till det särskilt där den risken är störst. Om de upptäcker en liten spricka i muren så börjar de hugga där för att splittra gemenskapen.

Min åsikt är mycket tydlig. Det minsta vi kan göra är att delta fullt ut i handelssanktionerna. Vi måste också stödja alla insatser för att stoppa i hålen som bildas. Man måste också kunna säga ifrån när sanktionerna rundas. Även om detta inte är en perfekt metod så måste vi använda de verktyg som finns i den utsträckning det går, eftersom vi inte har avsikten att skicka soldater dit för att kriga. Vi har också andra liknande verktyg, och på något sätt måste vi motverka att Ryssland fortsätter att ha en ekonomi som gör det möjligt att finansiera vapenproduktion och att landet fortsätter att fullständigt strunta i internationella lagar, föra bort barn och förstås samtidigt bygga upp sin kapacitet att fortsätta kriget. De har sagt mycket tydligt att de inte tänker stanna där de är nu, de bedriver ett hybridkrig i länderna som tillhör vår allians, och det är nu en tidsfråga när man slutar kalla det för hybridhot och börjar kalla det för någonting annat. Det är förstås en större fråga och ingenting som de nordiska länderna kan ta beslut om ensamma. Men det vi måste göra, demokratiska länder och stater som stöder den regelbaserade världsordningen, är att stå samman. Det är i grund och botten det enda vi har, och vi måste vara starkare än motståndaren.

Information

Talenummer
110
Type
Svar på spørgsmål
Status
Waiting for transcription
Dato