200. Willum Þór Þórsson (Svar på spørgsmål)
Takk fyrir þessa fyrirspurn. Ég sagði hér í ræðu minni og það hefur komið fram í máli flestra að þetta er mjög mikilvægt og ég tek undir það og við styðjum það heils hugar hér á Íslandi. Þetta er raunverulega eilíft verkefni, eilíft viðfangsefni. Þegar við horfum til þess að ferðast hér á milli á svæðinu, starfa, mennta okkur, heimsækja vini og flæða hér á milli og það sé auðvelt að vinna einhvers staðar á svæðinu óháð því hvaðan við komum þá eru það þessar skráningar sem skipta mjög miklu máli, þessar stafrænu skráningar, og að vera með gagnagrunn svo þetta sé gagnsætt, og ýmiss konar skráð réttindi. Ég vil líka draga fram að við ættum að setja áhersluna á að skoða starfsréttindi, starfstengd réttindi og menntunina. Ég hef rekið mig á það sem heilbrigðisráðherra að við erum með ólíkum hætti að meta grunnnám lækna og við erum að vinna með það núna milli Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Það eru svona atriði sem skipta öllu máli þegar við erum að flæða hér á milli eins og við viljum hafa það, hindrunarlaust.
Skandinavisk översättning
Tack för frågan! Som jag sade i mitt anförande, och som de flesta andra också har nämnt, så har vi här att göra med en mycket viktig fråga som vi här på Island stöder fullt ut. Det är faktiskt en uppgift, ett arbete, som aldrig tar slut. När det gäller att resa runt i vår region, arbeta, studera, besöka vänner och ta sig omkring, och att göra det enkelt att jobba någonstans i regionen oavsett ursprungslandet, så är det mycket viktigt med all registrering, all digital registrering, och att det finns en databas för att uppnå transparens, och olika typer av registrerade rättigheter. Jag skulle också vilja nämna att vi borde sätta fokus på lösningar gällande yrkesrättigheter, yrkesrelaterade rättigheter och utbildning. Som hälsominister har jag upptäckt att länderna arbetar på olika sätt med en utvärdering av grundutbildningen för läkare, och det finns nu ett samarbete om detta mellan Island, Norge och Sverige. Det är sådana saker som är viktiga.