201. Bryndís Haraldsdóttir (Indlæg)

Mig langar að þakka samstarfsráðherrunum kærlega fyrir yfirferð sína hér. Ég held að öllum megi vera það ljóst af þeim spurningum og andsvörum sem hér hafa verið lögð fram af þingmönnum Norðurlandaráðs að okkur finnst þetta mikilvægt. Okkur finnst mikilvægt að þið hlustið á það sem fram fer hér, að þið svarið spurningunum okkar og vinnið í samræmi við þær ályktanir sem við leggjum hér fram. Mig langar að þakka sérstaklega sænsku formennskunni, Jessicu Rosencrantz, en hún kannski flytur líka þakkir til forvera síns, hinnar Jessikunnar, sem við höfum unnið með meiri hluta ársins. Það hefur gengið mjög vel,  samstarf okkar í íslensku formennskunni í Norðurlandaráði og svo sænsku formennskunnar í Norrænu ráðherranefndinni.

Mig langar að ítreka það hér í ræðu minni að við í Norðurlandaráði buðum átta samstarfsráðherrum vegna þess að við lítum svo á að það séu átta lönd í Norðurlandaráði. Við buðum átta forsætisráðherrum og við buðum líka átta utanríkisráðherrum að taka þátt í umræðunni okkar hér. Mér þykir miður að grænlenska ríkisstjórnin, Naalakkersuisut, ég var að reyna að bera þetta fram en ég veit ekki hvort það tókst, Doris mín, hafi ákveðið að taka ekki þátt í þessu. En ég vil líka þakka okkar góðu félögum, Doris og Mariane, fyrir að vera hérna með okkur. Það er mikilvægt fyrir okkur að við höfum grænlenska rödd með hér í salnum. Ég segi þetta nú því að ég geri ráð fyrir því að á morgun munum við afgreiða ályktun um breytingar á Helsingfors-sáttmálanum og þá erum við að senda boltann yfir til ríkisstjórna ríkjanna, að vinna með þær tillögur sem við höfum lagt mikla vinnu í hér allt síðasta ár og meira að segja lengur en það, og ég óska ykkur góðs gengis.

Ég þakka aftur kærlega fyrir gott samstarf og gott samtal hér í dag.

 

Skandinavisk översättning

Jag skulle vilja framföra ett hjärtligt tack till samarbetsministrarna för deras redogörelse. Jag tror att de frågor och repliker som vi har fått från medlemmar i Nordiska rådet gör det tydligt för alla att vi tycker att detta är viktigt. Det är viktigt för oss att ni lyssnar till det som sägs i debatten, att ni svarar på våra frågor och att ni arbetar enligt de rekommendationer som vi framlägger. Jag skulle särskilt vilja tacka det svenska ordförandeskapet, Jessica Rosencrantz, som kanske kan föra vidare ett tack till den förra samarbetsministern, den andra Jessika, som vi har arbetat med under större delen av året. Samarbetet mellan det isländska presidentskapet i Nordiska rådet och det svenska ordförandeskapet i Nordiska ministerrådet har fungerat mycket bra.

Jag skulle vilja upprepa att vi i Nordiska rådet skickade inbjudan till åtta samarbetsministrar eftersom vi menar att det finns åtta länder i Nordiska rådet. Vi skickade också inbjudan till åtta statsministrar och åtta utrikesministrar att delta i vår debatt här i dag. Det är tråkigt att den grönländska regeringen, Naalakkersuisut, som jag försöker uttala rätt men jag vet inte om jag lyckades med det, kära Doris, bestämde sig för att inte delta i detta. Men jag vill också tacka våra goda kollegor, Doris och Mariane, för att vara med oss här. Det är viktigt för oss att ha en grönländsk röst i salen. Jag nämner detta nu eftersom jag antar att vi i morgon kommer att godkänna en rekommendation om ändringar av Helsingforsavtalet, vilket betyder att vi då kastar bollen över till regeringarna och ber dem fortsätta arbetet med de förslag som vi har lagt ned mycket tid på under hela det gångna året, och t.o.m. mycket längre än så, och jag önskar er lycka till.

Jag tackar igen för ett gott samarbete och en bra debatt här i dag.

Information

Talenummer
201
Type
Indlæg
Status
Waiting for transcription
Dato