The Foreign Desk: Kynbundinn launamunur

Katrin Jakobsdóttir 2019
Photographer
Sigurjon Ragnar
Norrænu löndin hafa beitt róttækum aðgerðum til þess að draga úr launamun milli kynja. Lokametrarnir í átt að jöfnum launum karla og kvenna reynast engu að síður þungfarnir. Michael Booth kynnir sér næstu skref hjá leiðtogum í kynjajafnrétti á heimsvísu.

The Foreign Desk og Norræna ráðherranefndin hafa tekið höndum saman við gerð þáttaraðar þar sem kafað er ofan í alþjóðlega mikilvægt efni frá svæðinu í fimm sérstökum þáttum. Í fyrsta þættinum er fjallað um kynbundinn launamun. Stilltu á The Foreign Desk (hlekkur hér að neðan) og kynntu þér nýjar hugmyndir með Michael Booth og frábærum gestum hans:

  • Kristin Skogen Lund, framkvæmdastjóri Schibsted
  • Lynn Roseberry, einn stofnanda og framkvæmdastjóri On the Agenda 
  • Nina Sandberg, þingmaður Verkamannaflokksins á norska þinginu
  • Thomas Blomqvist, jafnréttismálaráðherra og norrænn samstarfsráðherra í Finnlandi
  • Ulrika Lorentzi, rannsakandi hjá LO, samtökum launafólks í Svíþjóð
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands
  • Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar á Íslandi

 

Vinsamlegast takið eftir að þetta hlaðvarp er aðeins á ensku.