Gott líf á sjálfbærum Norðurlöndum – Norræn áætlun um sjálfbæra þróun 2013–2025

(1. janúar 2021 tók Framkvæmdaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um framtíðarsýn okkar 2030 við af þessu riti.)

Information

Utgivningsdatum
Beskrivning
Framkvæmdaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um framtíðarsýn okkar 2030 tók við af ritinu Gott líf á sjálfbærum Norðurlöndum - Norræn áætlun um sjálfbæra þróun 2013–2025 þann 1. janúar 2021. Framvegis er Framtíðarsýn okkar 2030 hinn norræni samstarfsrammi um starf Norrænu ráðherranefndarinnar að sjálfbærri þróun.Gott líf á sjálfbærum Norðurlöndum - Norræn áætlun um sjálfbæra þróun 2013–2025 segir frá þverfaglegum megináherslum í starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar. Sjálfbærnisjónarmið eiga að setja mark sitt á allt starf sem unnið er innan vébanda ráðherranefndarinnar.Norræna ráðherranefndin á að stuðla að því að Norðurlöndin geti áfram þróað samfélögin í átt til frekari velferðar og lífsgæða í þágu núlifandi og komandi kynslóða með því að vernda og nýta getu jarðar til að standa undir lífi í allri þess fjölbreytni.Í áætluninni koma fram verklagsreglur sem gilda allt til ársins 2025 á eftirfarandi áherslusviðum: Norrænt velferðarkerfi, lífvænleg vistkerfi, breytt loftslag, sjálfbær nýting auðlinda jarðar ásamt menntun, rannsóknum og nýsköpun. Fagsvið ráðherranefndarinnar hrinda áætluninni í framkvæmd með því að ráðast í raunhæf verkefni á grundvelli hennar.
Publikationsnummer
2019:708