Miklir möguleikar í norrænu samstarfi um ferðamál

18.03.19 | Fréttir
Islands turismminister Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir och Sigrún Brynja Einarsdóttir, som skrivit turismrapporten.
Photographer
Þórir Hrafnsson

Ragnheiður Elín Árnadóttir afhendir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamálaráðherra, skýrslu sína 27. mars.

Norðurlönd hafa til mikils að vinna með því að starfa saman á sviði ferðamála. Meðal annars getur borgað sig að eiga samstarf á sviði nýsköpunar, stafrænnar þróunar og markaðsmála. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Norræna ráðherranefndin hefur látið gera.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrum iðnaðar- og viðskiptaráðherra, vann greininguna og varpar fram allmörgum tillögum að því hvernig styrkja megi samstarfið. Efni skýrslunnar er ætlað að nýtast í vinnu að norrænni ferðamálaáætlun sem nú stendur yfir og verður kynnt síðar á þessu ári.

Ferðamál eru í miklum forgangi hjá Norrænu ráðherranefndinni og samstarf um ferðamál verður ofarlega á dagskrá þegar atvinnumálaráðherrarnir hittast á Íslandi í júní.

Ragnheiður Elín bendir meðal annars á það í skýrslu sinni að sjálfbær ferðamennska sé svið þar sem traust samstarf skiptir máli og þar sem áskoranir séu svipaðar á öllum Norðurlöndum. Hún leggur til að gerð verði norræn áætlun með mælanlegum og metnaðarfullum markmiðum um sjálfbæra ferðamennsku. Auk þess lýsir hún eftir skýrum markmiðum og forgangsröðun norrænna stjórnmálamanna vegna samstarfs um sjálfbæra ferðamennsku. 

Viðbótarverðmæti þurfa að felast í samstarfinu

Þá bendir Ragnheiður Elín á að stafræn þróun sé mikilvægt samstarfssvið. Hún leggur til að komið verði á fót vettvangi þar sem varpað verður fram nýjum hugmyndum á sviði stafrænnar ferðamennsku, meðal annars með áherslu á snjalla áfangastaði. Auk þess vill hún aukið samstarf um söfnun gagna og upplýsinga.

Hún leggur áherslu á að samstarfið eigi að vera gagnlegt, skipta máli og að í því felist viðbótarverðmæti. Hún kærir sig ekki um samstarf formsins vegna og leggur til að það byggi á kerfum sem þegar eru fyrir hendi.

„Margar áskoranir á sviði ferðamála eru þær sömu í öllum löndunum. Þess vegna er til mikils að vinna að auka samstarfið. Í vinnu minna við greininguna fann ég skýr merki þess að bæði er áhugi á og þörf fyrir aukið norrænt samstarf á sviði ferðamála. Löndin geta lært mikið hvert af öðru,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir.