Búseta á Álandseyjum

house, Åland
Photographer
Bent Blomqvist
Hér getur þú lesið þér til um sérstakar reglur og annað um húsnæðismál á Álandseyjum. Auk þess eru gefnar upplýsingar um hvar þú getur fundið þér húsnæði á Álandseyjum, búsetaíbúðir, leiguíbúðir, meðalleigu, tengil á biðlista eftir leiguíbúð í Maríuhöfn og húsnæðisbætur á Álandseyjum.

Almennar upplýsingar um búsetaíbúðir, leiguíbúðir og húsnæðisstyrki á Álandseyjum fást á síðunni um búsetu í Finnlandi.

Get ég keypt húsnæði (íbúð eða hús) á Álandseyjum?

Ef þú hefur búið á Álandseyjum í fimm ár samfellt og ert finnskur ríkisborgari getur þú sótt um álenskan heimabyggðarrétt.
Álenski heimabyggðarrétturinn er forsenda kosningaréttar og kjörgengis inn á lögþingið, þess að eiga og hafa á höndum fasteignir á Álandseyjum og að stunda viðskipti á Álandseyjum. Hins vegar er mögulegt að kaupa íbúð eða hús á Álandseyjum án þess að hafa álenskan heimabyggðarrétt. Landsstjórn Álandseyja getur veitt undanþágur frá kröfunni um heimabyggðarrétt. Er hún veitt eftir að sótt er um leyfi til landkaupa. 
Athugaðu að þeir sem erfa fasteignir á Álandseyjum njóta erfðaréttinda samkvæmt finnskum lögum.

Hér má lesa um skilyrði fyrir landakaupum og álenskan heimabyggðarrétt á síðum landsstjórnar Álandseyja. Einnig eru gefnir tenglar á umsóknareyðublöð á þessum síðum.

Leiguíbúðir

Öllum er frjálst að leigja.

Búsetaíbúðir

Húsnæðissamtök Álandseyja bjóða upp á 68 leiguíbúðir í Maríuhöfn. Öllum er frjálst að gerast meðlimir. Öllum ríkisborgurum ESB-ríkja er leyfilegt að leigja íbúð.

Íbúð í gegnum húseigendafélag

Kaup eru leyfð fyrir alla ríkisborgara ESB-ríkja. Um er að ræða eign í gegnum húseigendafélag og ekki þarf leyfi til kaupa.

Fasteignamiðlarar á Álandseyjum

Fasteignamiðlarar á Álandseyjum hafa mikla þekkingu á húsnæðismálum og geta svarað spurningum þínum um þau.

Fasteignamarkaðurinn á Álandseyjum

Åland Living heldur úti síðu með tenglum á alla sem miðla húsnæði sem er til leigu eða sölu. Smelltu hér til að leigja eða kaupa.

Ef þú hefur áhuga á leiguíbúðum lífeyrissjóðs sjómanna í Maríuhöfn, Sjömanspensionskassan, sem sjómenn hafa forgang á, finnur þú upplýsingar um þær á vefsíðu lífeyrissjóðsins.

Fleiri leiðir til að finna húsnæði

Ef þú ert á Facebook mælum við með því að þú leitir að Facebook-hópnum „Bostäder på Åland“, sem er á sænsku. Þú getur þó skrifað á ensku í honum. Þar finnur þú auglýsingar frá einstökum leigusölum. Við mælum einnig með því að þú birtir þína eigin auglýsingu, sérstaklega ef þér liggur á að fá húsnæði.

Dagblöðin á Álandseyjum halda einnig úti leigusíðum. Þú getur birt þína auglýsingu ókeypis á flipanum „Önskas hyra“, sem þú finnur hér:

Meðalleiga á Álandseyjum

Í apríl árið 2022 var meðalleiguverð húsnæðis á Álandseyjum 10,99 evrur á fermetra. Í Maríuhöfn var hún 11,51 evra, í sveitarfélögum á landsbyggðinni 9,51 evra og í skerjagarðinum 9,18 evrur.

Biðlisti eftir leiguhúsnæði

Í Maríuhöfn er biðlisti eftir leiguíbúðum. Ef þú vilt leigja íbúð skilar þú inn umsókn til sveitarfélagsins Marstad.

Leiguhúsnæði er einnig í boði í öðrum sveitarfélögum á Álandseyjum og til að komast á biðlista er haft samband við viðkomandi sveitarfélag.

Húsnæðisbætur

Tilgangur húsnæðisbóta er að minnka húsnæðiskostnað heimila með lágar tekjur. Sótt er um húsnæðisbætur hjá FPA á Álandseyjum, sem tekur við umsóknum og öllum spurningum um húsnæðisbætur.

Námsmannaíbúðir á Álandseyjum

Á Álandseyjum búa flestir nemendur í ýmiss konar leiguhúsnæði í Maríuhöfn. Þú getur kynnt þér það nánar á síðu Info Norden um námsmannaíbúðir á Álandseyjum.

Nánari upplýsingar

Hér eru gefnar upplýsingar um það helsta sem hafa þarf í huga þegar flutt er til Álandseyja:

Hafðu samband við yfirvöld

Ef þú hefur spurningar um álenskan heimabyggðarrétt geturðu haft samband við deild réttarfarslegra og alþjóðlegra málefna:

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.

Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Við gefum upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkjum eða hefja rekstur í öðru norrænu landi.
Leitaðu að skrifstofu Info Norden hérna