Fjölskyldubætur á Álandseyjum
Á Álandseyjum gilda að mestu leyti sömu reglur um fæðingarorlofsgreiðslur og í Finnlandi. Sótt er um fæðingarorlofsgreiðslur hjá FPA á meðan til dæmis er sótt um meðgöngustyrk hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna (Kommunernas socialtjänst, KST).
Nánari upplýsingar um fæðingarorlofsgreiðslur eru á síðunni „Fæðingarorlofsgreiðslur í Finnlandi“. Upplýsingar um styrk vegna heimagæslu og barnabætur er að finna á síðunum „Dagvistun barna á Álandseyjum“ og „Barnabætur á Álandseyjum“.
Meðgöngustyrkur
Ef þú ert barnshafandi eða nýorðin móðir og býrð á Álandseyjum átt þú rétt á meðgöngustyrk frá félagsþjónustu sveitarfélaganna (KST). Styrkurinn er veittur eftir 154 daga meðgöngu og að lokinni læknisskoðun fyrir fimmta mánuð meðgöngunnar.
Á Álandseyjum er styrkurinn skattfrjáls 224 evra eingreiðsla. Sótt er um meðgöngustyrk rafrænni þjónustu KST og hægt er að velja milli styrks í peningum eða sem mæðrapakka. Nánari upplýsingar um meðgöngustyrk er að finna á vefsvæði KST.
Nánari upplýsingar
Á vefsíðum Info Norden er að finna upplýsingar um fæðingarorlofsgreiðslur annars staðar á Norðurlöndum og þær stofnanir sem leita skal til vegna spurninga.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.