Dagur Norðurlanda: Virði menningar á Norðurlöndum á krísutímum – norrænt menningarsamstarf í fortíð, nútíð og framtíð

23.03.21 | Viðburður
Nordens dag
Photographer
norden.org
Hvaða hlutverki hefur menningin gegnt í norrænu samstarfi á þeirri hálfu öld sem liðin eru frá stofnun Norrænu ráðherranefndarinnar? Hvaða áhrif hefur kórónuveirufaraldurinn haft á norrænt menningarlíf? Hvaða hlutverki mun menningin gegna í norrænu samstarfi í framtíðinni? Þessum spurningum verður velt upp í umræðum stjórnmálafólks, íbúa og fulltrúa menningarlífsins.

Upplýsingar

Dates
23.03.2021
Time
18:00 - 19:15
Location

Nordens hus
Reykjavik
Ísland

Type
Online

Samstarf í menningarmálum er hornsteinn norræns samstarfs og er einnig mikilvægur liður í þeirri framtíðarsýn forsætisráðherranna að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Þess vegna efna Norræna húsið í Reykjavík og Norræna félagið á Íslandi til pallborðsumræðna um virði norrænnar menningar og menningarsamstarfsins í fortíð, nútíð og framtíð.

Dagskrá

  • Sjónarhorn: Norrænar menningarstofnanir – Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins í Reykjavík

  • Sjónarhorn: Pólitískt samstarf – Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda á Íslandi

  • Sjónarhorn: Borgaralegt samfélag á Norðurlöndum – Hrannar Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi

  • Sjónarhorn: Formennska Finnlands í Norrænu ráðherranefndinni – Ann-Sofie Stude, sendiherra Finnlands á Íslandi

Umræður:

Pallborðið mun:

  • Gefa sögulegt sjónarhorn á virði norræns menningarsamstarfs.
  • Varpa ljósi á hvernig heimsfaraldur kórónuveiru hefur haft áhrif á menningarlíf á Norðurlöndum.
  • Ræða hvaða þemu og hvaða hlutverki menning mun gegna í norrænu samstarfi í framtíðinni.

Þátttakendur í pallborðsumræðum:

  • Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri
  • Tue West, tónlistarmaður
  • Björn Rafnar Ólafsson, menntaskólanemi í Norður-Atlantshafsbekknum (Nord-Atlantisk gymnasiumklasse)
  • Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður í forsætisnefnd Norðurlandaráðs og stjórnarmeðlimur Norræna menningarsjóðsins
  • Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins í Reykjavík

Hugleiðingar í lok umræðnanna: Aldís Mjöll Geirsdóttir, forseti Norðurlandaráðs æskunnar.  

Fundarstjóri: Sif Gunnarsdóttir, varaformaður Norræna félagsins á Íslandi.

Að lokum mun Söngsveitin Fílharmónía flytja tvö norræn lög.

Viðburðurinn fer fram á skandinavískum tungumálum.