310. Orri Páll Jóhannsson (Innlegg)

Informasjon

Speech type
Innlegg
Speech number
310
Speech statuses
Waiting for transcription
Date

Við í flokkahópi Norrænna vinstri grænna styðjum þessa tillögu þó svo að upprunalega tillagan hafi tekið breytingum í meðförum sjálfbærninefndarinnar. Við í flokkahópi Norrænna vinstri grænna teljum að vistmorð sé mikilvægt að viðurkenna sem brot á alþjóðalögum í Rómarsamþykktinni. Allar norrænu þjóðirnar byggja afkomu sína að einhverju eða miklu leyti á nýtingu náttúruauðlinda. Að sama skapi höfum við lagt ríka áherslu á að fylgja hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Engu að síður má finna umhverfisfjandsamlega starfsemi og neikvæðar afleiðingar auðlindanýtingar víða um heim. Það er því brýnt að norrænu löndin taki þátt í viðeigandi umræðum á alþjóðavettvangi um að gera alvarleg brot gegn náttúrulegu umhverfi refsiverð, jafnt á stríðstímum sem friðartímum. Við í flokkahópi Norrænna vinstri grænna styðjum það heils hugar.