2026

Lýðræðið á ferðinni

Norræna ráðherranefndin leggur mikla áherslu á að taka þátt í ýmsum samkomum þar sem lýðræðislegt samtal er í fyrirrúmi. Þar koma saman stjórnmálafólk, ungmenni og sérfræðingar ásamt fulltrúum félagasamtaka og atvinnulífsins og ræða brýn samfélagsmál.

Ljósmyndari
Andreas Omvik / norden.org

Við tökum þátt í lýðræðishátíðum svo sem Folkemødet, SuomiAreena, Almedalen og Arendal og ræðum norrænt samstarf í nýrri heimsskipan, mikilvægi lýðræðislegra gilda, samfélagsöryggi, nýsköpun, menningu og margt fleira.

Stofnanir og skrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar eiga einnig fulltrúa á samkomum í Eystrasaltslöndunum en á Íslandi koma mikilvægir hagaðilar norðurslóða saman á Hringborði norðurslóða (Arctic Circle).

Yfirlit

demokratifestival

Hér er komið saman

Þar koma saman stjórnmálafólk, ungmenni og sérfræðingar ásamt fulltrúum félagasamtaka og atvinnulífsins og ræða brýn samfélagsmál.

Norrænar lýðræðishátíðir

Folkemøde, Borgundarhólmi (DK)

SuomiAreena, Pori (FI)

Arendalsuka, Arendal (NO)

Almedalen, Visby (SE)

Frihamnsdagarna, Gautaborg (SE)

Lýðræðishátíðir á norðurslóðum

Arctic Frontiers, Tromsø (NO)

Hringborð norðurslóða, Reykjavík (IS)

Lýðræðishátíðir í Eystrasaltslöndunum

The LAMPA Conversation Festival, Cēsis (LV)

Arvamus Opinion Festival, Paide (EE)

Butent, Vilnius (LT)

Tengiliður

Tengiliður

Tengiliður vegna spurninga, fjölmiðlasamskipta og þess háttar:

Sara Kolka
Aðalráðgjafi/Samskiptasvið
+45 31 22 80 83
sarkol@norden.org