Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
„Þegar ég gaumgæfi allar samstarfsáætlanirnar fyrir norræna samstarfið fram til ársins 2030 þá efast ég ekki í sekúndu: Norðurlönd verða sterkari við upphaf næsta áratugar“.
Hinar 14 nýju samstarfsáætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar, sem allar innihalda sameiginlegar áherslur, skýra forgangröðun og markvissar aðgerðir, munu vera leiðbeinandi fyrir starfið í Norrænu ráðherranefndinni til ársins 2030.
Norrænu forsætisráðherrarnir hafa þá sameiginlegu framtíðarsýn um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Það krefst öflugs pólitísks samstarfs.
Frá árinu 2025 munu 14 samstarfsáætlanir, sem allar innihalda sameiginlegar áherslur, skýra forgangröðun og markvissar aðgerðir, vera leiðbeinandi fyrir starfið í Norrænu ráðherranefndinni. Þeim er ætlað að veita Norðurlöndum bestu skilyrði til að verða grænt, sjálfbært og samkeppnishæft svæði árið 2030.
„Þegar ég gaumgæfi allar samstarfsáætlanirnar fyrir norræna samstarfið fram til ársins 2030 þá efast ég ekki í sekúndu: Norðurlönd verða sterkari við upphaf næsta áratugar“.
Við munum vinna saman að viðbúnaðarmálum hvað varðar fæðu, orku og lækningavörur og um aðgang að nauðsynlegum hrávörum og innviðum. Á sama hátt munum við búa okkur undir krísur vegna umhverfis- og loftslagsbreytinga. Í gegnum menninguna munum við einnig skapa lifandi samfélög sem eru grunnur að því að Norðurlönd komist heil út úr krepputímum.
Við viljum tryggja að auðugt menningarsamstarf sem eykur samkennd, inngildingu og margbreytileika og byggir upp lýðræðishæfni og gagnrýna hugsun með kennslu og menntun. Allir á Norðurlöndum skulu hafa möguleika á og skilyrði til að taka þátt í samfélaginu.
Við brjótum niður tálma og gerum auðveldara að búa, vinna, læra og reka fyrirtæki þvert um öll Norðurlönd. Við stefnum norrænum borgurum saman og stuðlum að samheldni með öflugu samstarfi um menningu- og tungumál, menntakerfi og stuðningi við norræna tengslanetið.
Við getum nýtt hvert annað til að efla samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja Bæði einkageirinn og opinberi geirinn eiga að búa yfir hæfni og vinnuafli til að mæta þörfum framtíðarinnar. Við einbeitum okkur að gæðum og jafnrétti í velferðarkerfum okkar og stuðlum að vaxtarmöguleikum til framtíðar á Norðurlöndum.
Við viljum í sameiningu finna leiðir til að nýta möguleika nýrrar tækni án þess að það ógni réttindum einstaklinga, félagslegum tengslum eða lýðræðisferlum.
Við viljum vinna saman að kerfisbundnum lausnum fyrir neytendur, fyrirtæki og hið opinbera svo Norðurlönd færist lengra í átt að hringrásarhagkerfum. Við viljum stýra náttúruauðlindum okkar á ábyrgan hátt, ekki síst í hafinu. Hin grænu umskipti skulu gagnast öllum.
Við viljum vinna saman að því að kynna Norðurlönd á alþjóðavísu til að standa vörð um grunngildi okkar, sameiginlega hagsmuni og styðja við fyrirtækin okkar. Sérstaklega viljum við efla samstarfið í nærumhverfi okkar umhverfis Eystrasaltið, við nágranna okkar í vestri og umhverfis norðurskautssvæðið.